Þá er komið að síðasta óskalista ársins og því vel við hæfi að hann innihaldi nóg af glamúr og glimmeri. Eftir aðeins örfáa daga tökum við á móti árinu 2024 og þar af leiðandi inniheldur óskalisti vikunnar vörur sem eru ómissandi á áramótunum – að minnsta kosti ef þú ætlar að taka á móti nýja árinu með stæl!

Að undanförnu hafa flíkur í „off-shoulder“ sniði verið að gera allt vitlaust og því engin furða að slík flík endi á óskalistanum. Þennan fallega kjól hannaði fatahönnuðurinn Andrea Magnúsdóttir, en hann er klassískur og tímalaus með þessu fallega sniði sem alla dreymir um þessa dagana.
Stundum þarf ekki meira en skemmtilegt hálsmen til að poppa lúkkið upp. Það er hægt að fá rósir í hinum ýmsu litum og efnum, en þessi er stílhrein og hentar vel fyrir áramótin.
Þetta tryllta sett er eftir íslenska fatahönnuðinn Hildi Yeoman og er fullkomið fyrir áramótin. Sniðið er skemmtilegt með flottum smáatriðum sem fanga augað!
Þessir eyrnalokkar gefa hvaða lúkki sem er nóg af glamúr og eru því ómissandi í skartgripaboxið. Hvort sem þú ætlar að fara alla leið í pallíettukjól og glimmerskóm eða vera í látlausari og klassískari flík þá munu þessir lokkar ekki valda vonbrigðum!
Þessi fallegi svarti kjóll er fullkomin fyrir hin ýmsu tilefni, þar á meðal áramótin! Það er óþarfi að vera að flækja hlutina – svo er hægt að dressa hann upp og niður að vild.
Það er spáð fremur köldu lofti á landinu yfir áramótin og því mikilvægt að huga að hlýjum og góðum fatnaði svo þú getir tekið á móti nýja árinu alsæl. Það er einfalt að hoppa úr hælunum yfir í þessa flottu kuldaskó sem eru það allra heitasta þessa dagana.
Það þurfa allir einn partítopp í fataskápinn, en þessi er með flottum silfurlituðum pallíettum sem ættu að koma öllum í partígírinn!
Eins og fram hefur komið er oft hægt að dressa flíkur upp og niður með fylgihlutum eins og skartgripum, skóm eða töskum. Þessi taska er því tilvalin í fataskápinn, en hún tekur hvaða lúkk sem er upp á næsta level.
Ertu búin að ákveða hvernig þú ætlar að farða þig um áramótin? Glimmer er ómissandi partur af áramótaförðuninni. Bættu smá glamúr á augnlokin með þessum fallega augnskugga frá Sisheido. Hann er í senn silkimjúkur og litsterkur, en það besta er hve auðveldlega hann blandast!
Það getur verið snúið að finna hina fullkomnu yfirhöfn yfir sparifötin, en þessi kápa slær alltaf í gegn!