Vigfús Bjarni og Bergþóra selja 199 milljóna einbýli

Heimili | 28. desember 2023

Vigfús Bjarni og Bergþóra selja 199 milljóna einbýli

Vigfús Bjarni Albertsson, prestur og forstöðumaður fjölskyldu- og sálgæsluþjónustu kirkjunnar, og Bergþóra Jónsdóttir hafa sett tignarlegt einbýlishús sitt við Bleikjukvísl í Árbænum á sölu. Húsið er á tveimur hæðum og telur 323 fm, en það var reist árið 1983.

Vigfús Bjarni og Bergþóra selja 199 milljóna einbýli

Heimili | 28. desember 2023

Vigfús Bjarni Albertsson og Bergþóra Jónsdóttir hafa sett 199 milljóna …
Vigfús Bjarni Albertsson og Bergþóra Jónsdóttir hafa sett 199 milljóna einbýli sitt í Árbænum á sölu. Samsett mynd

Vigfús Bjarni Albertsson, prestur og forstöðumaður fjölskyldu- og sálgæsluþjónustu kirkjunnar, og Bergþóra Jónsdóttir hafa sett tignarlegt einbýlishús sitt við Bleikjukvísl í Árbænum á sölu. Húsið er á tveimur hæðum og telur 323 fm, en það var reist árið 1983.

Vigfús Bjarni Albertsson, prestur og forstöðumaður fjölskyldu- og sálgæsluþjónustu kirkjunnar, og Bergþóra Jónsdóttir hafa sett tignarlegt einbýlishús sitt við Bleikjukvísl í Árbænum á sölu. Húsið er á tveimur hæðum og telur 323 fm, en það var reist árið 1983.

Í rúmgóðu alrými á efri hæð hússins er að finna eldhús, borðstofu og stofu. Eldhúsið var tekið í gegn árið 2021, en þá voru skápar færðir til og skipulagi breytt á upprunalegri Alno-innréttingu sem fékk annars að halda sér. Svartir og gráir tónar eru í forgrunni í rýminu, bæði á innréttingu og veggjum. 

Húsið var byggt árið 1983 og telur 323 fm.
Húsið var byggt árið 1983 og telur 323 fm.
Eldhúsinnréttingin er svört með borðplötu úr granítstein.
Eldhúsinnréttingin er svört með borðplötu úr granítstein.

Aukaíbúð með sólstofu á efri hæðinni

Í stofunni hleypa stórir gluggar mikilli birtu inn, en þar má einnig sjá steyptan arinn á milli stofu og borðstofu sem gefur rýminu mikinn sjarma. Frá borðstofu er útgengt á snyrtilega verönd, en garðurinn í kringum eignina er gróinn með nýlegu gróðurhúsi og timburverönd. 

Eignin státar af sjö svefnherbergjum og fimm baðherbergjum, en á efri hæð hússins er aukaíbúð með eldhúsi, stofu, borðstofu, svefnherbergi, baðherbergi og sólstofu. Neðri hæðin telur 78 fm en þar er að finna þrjú svefnherbergi, eitt baðherbergi, sjónvarpsstofu og forstofu. Ásett verð er 199 milljónir.

Sjá á fasteignavef mbl.is: Bleikjukvísl 17

Arinninn gefur rýminu mikinn sjarma á meðan stórir gluggar hleypa …
Arinninn gefur rýminu mikinn sjarma á meðan stórir gluggar hleypa birtu inn.
Snyrtilegur garður umlykur húsið.
Snyrtilegur garður umlykur húsið.
mbl.is