Algengustu kynlífsspurningar Google

Samskipti kynjanna | 30. desember 2023

Algengustu kynlífsspurningar Google

Leitarvélin Google hefur sett fram lista yfir algengustu kynlífsspurningar sem slegnar voru inn árið 2023. Það sem helst brann á fólki snerist um ákveðna kynlífsstellingu.

Algengustu kynlífsspurningar Google

Samskipti kynjanna | 30. desember 2023

Kynlíf - margt brennur á fólki samkvæmt leitarvél Google.
Kynlíf - margt brennur á fólki samkvæmt leitarvél Google. Ljósmynd/Unsplash

Leitarvélin Google hefur sett fram lista yfir algengustu kynlífsspurningar sem slegnar voru inn árið 2023. Það sem helst brann á fólki snerist um ákveðna kynlífsstellingu.

Leitarvélin Google hefur sett fram lista yfir algengustu kynlífsspurningar sem slegnar voru inn árið 2023. Það sem helst brann á fólki snerist um ákveðna kynlífsstellingu.

Hvað er hraðahindrunar-stelling?

Samkvæmt Google þá vildi fólk helst vita hvað hraðahindrunar-stellingin (speed bump position) er. Í stuttu máli er það þegar einstaklingur liggur á maganum með kodda undir mjöðmum. Þannig líkist líkaminn einna helst hraðahindrun. Talið er að fólk hafi orðið forvitið eftir að raunveruleikastjarnan Tom Clare sagði það vera uppáhaldsstellingin sín, segir í umfjöllun News.com.au.

Aðrar vinsælar spurningar voru um hvort óhætt væri að stunda kynlíf á meðgöngu (sem það er) og hvað ætti að fara á mörg stefnumót áður en stundað er kynlíf.

Spurningarnar í heild sinni:

Hvað er hraðahindrunar-stelling?

Má stunda kynlíf á meðgöngu?

Hvað er „sex positivity“?

Afhverju blæðir eftir kynlíf?

Hversu mörg stefnumót fyrir kynlíf?

Hvað brennir kynlíf mörgum hitaeiningum?

Hvenær má stunda kynlíf eftir fósturlát?

Hvað eru endaþarmsmök?

Afhverju hef ég enga kynlífslöngun kona?

Hvernig er kynlíf fiska?

mbl.is