Flugfreyjur eru miklir sérfræðingar þegar kemur að því hvað má og hvað má ekki gera um borð í flugvél. Reglulega birta þær góð ráð fyrir ferðalanga, en eftirfarandi fimm flugfreyjufréttir vöktu mesta lukku á ferðavef mbl.is árið 2023.

Listi yfir það sem flugfreyjur borða og drekka ekki í háloftunum vakti hve mesta athygli lesenda ferðavefs mbl.is árið 2023. Hér var þrennt nefnt sem boðið er upp á um borð í flestum flugvélum sem flugfreyjur forðast.
Flugfreyjur lenda í ýmsum uppákomum í háloftunum, en það voru margir forvitnir að vita hvað væri það dónalegasta sem flugfreyjur hafa lent í.
Lesendur ferðavefs mbl.is höfðu einnig mikinn áhuga á að vita hvaða algengu mistök farþegar gera sem pirra flugfreyjur hve mest.
Flugfreyjan og þjálfarinn Sara Davíðsdóttir deildi skotheldri æfingu sem auðvelt er að taka á ferðalagi eða í stoppi. Æfingin vakti mikla lukku meðal lesenda.
Í september birti Icelandair færslu á Facebook-síðu sinni þar sem þau fögnuðu íslenskri fjölskyldu sem starfar hjá fyrirtækinu. Feðginin Aldís Lilja Örnólfsdóttir og Örnólfur Jónsson starfa bæði sem flugmenn hjá Icelandair á meðan Sigrún Hildur Kristjánsdóttir, móðir Aldísar og eiginkona Örnólfs, starfar sem flugfreyja hjá fyrirtækinu. Þá er eiginmaður Aldísar einnig flugmaður á meðan bróðir hennar er að læra að verða flugumferðastjóri.