Besta humarsúpan gerð frá grunni

Uppskriftir | 12. janúar 2024

Besta humarsúpan gerð frá grunni

Hanna Thordarson er listræn og mörgum hæfileikum gædd. Hún er matgæðingur af guðs náð og þekkt fyrir að gera eina bestu humarsúpu í heimi. Hanna sviptir hulunni af uppskriftinni að humarsúpunni sinni sem steinliggur á þessum árstíma.

Besta humarsúpan gerð frá grunni

Uppskriftir | 12. janúar 2024

Hanna Thordarson matgæðingur með meiru er þekkt fyrir sína rómuðu …
Hanna Thordarson matgæðingur með meiru er þekkt fyrir sína rómuðu humarsúpu sem hún gerir ávallt frá grunni. Samsett mynd

Hanna Thordarson er listræn og mörgum hæfileikum gædd. Hún er matgæðingur af guðs náð og þekkt fyrir að gera eina bestu humarsúpu í heimi. Hanna sviptir hulunni af uppskriftinni að humarsúpunni sinni sem steinliggur á þessum árstíma.

Hanna Thordarson er listræn og mörgum hæfileikum gædd. Hún er matgæðingur af guðs náð og þekkt fyrir að gera eina bestu humarsúpu í heimi. Hanna sviptir hulunni af uppskriftinni að humarsúpunni sinni sem steinliggur á þessum árstíma.

„Þessi uppskrift er heimatilbúin og er mjög vinsæl hjá heimilisfólkinu. Venjulega er fyrsta degi ársins fagnað með þessari súpu en einnig má gera hana hversdagslegri með því að nota minna af humri og bæta fiski við í staðinn. Þeir sem kjósa milda humarsúpa ættu að prófa þessa,“ segir Hanna.

Býr oft til eigin kryddblöndu

„Það er ágætt að hafa í huga að súpan er þunn og mér hefur þótt hún góð þannig en hana má þykkja með meira af sósujafnara eða maizena-mjöli. Oft bý ég til kryddblöndu sem ég set bæði í humarsoðið og í súpuna sjálfa. Hún kemur í staðinn fyrir salt og pipar í súpunni. Vert er líka að hafa í huga að hráefnin og hlutföllin eru ekki alveg heilög. Stundum nota ég meira hvítvín, sleppi sveppamulningnum og nota meiri rjóma, set minna eða meira af humri, bara svona eftir því hvað ég á til,“ segir Hanna sem veit fátt skemmtilegra en að leika sér við matargerð í eldhúsinu.

Hægt er að vinna sér í haginn með því að búa til kryddblönduna og humarsoðið áður og geyma í kæli. Tekur um tvær klukkustundir. Einnig er gott ráð að taka humarinn úr frysti daginn fyrir notkun og láta hann þiðna í kæli.

Ómótstæðilega girnileg humarsúpa.
Ómótstæðilega girnileg humarsúpa. Ljósmynd/Heba Sólveig Heimisdóttir

Humarsúpan hennar Hönnu

Fyrir 4-5

Humarsoð

  • ½ laukur, saxaður
  • 3-4 sellerístilkar, niðurskornir
  • 2-3 hvítlauksrif, smátt söxuð
  • Smjör eftir smekk og þörfum
  • Skel af u.þ.b. 14-20 stk. meðalstórum humrum. Stærð og fjöldi fer eftir tilefni, fínt að kaupa t.d. skelbrot.
  • 1 l vatn (vatnið á að ná yfir
  • humarskeljarnar)
  • 1 tsk. græn piparkorn (niðursoðin)
  • 1 tsk. rautt curry paste
  • 1 tsk. kryddblanda, má sleppa (1 tsk. rósapipar, 1 tsk. ljós sinnepsfræ, ½ tsk. dökk sinnepsfræ, 2 tsk. hvítlaukssalt og ½ tsk. svartur pipar, allt sett í mortél og mulið).

Aðferð:

  1. Best er að taka humarinn úr frysti daginn áður og láta hann þiðna í kæli eins og fram kemur hér fyrir ofan. Allt sem rennur af humrinum er sett í soðið.
  2. Smjör brætt á pönnu (eða í potti), lauk, selleríi og hvítlauk bætt út í og steikt á vægum hita í 10-15 mínútur. Laukurinn á ekki að brúnast heldur verða glær.
  3. Humarskelin sett á pönnuna og hitinn aðeins hækkaður, hrært í stutta stund.
  4. Vatni bætt við og hitað að suðu, látið sjóða í 10-15 mínútur.
  5. Niðursoðinn grænn pipar, kryddblandan og curry paste sett út í og látið malla í u.þ.b. 30 mínútur, með lokið á.
  6. Soð síað frá í gegnum sigti og geymt, gott að láta renna vel af.
  7. Soðið er u.þ.b. 5-7 dl.

Humarsúpa

  • Smjör
  • 14-20 meðalstórir hreinsaðir humrar
  • 3-4 msk. sósujafnari
  • Humarsoð (uppskrift hér að ofan)
  • 3-4 dl hvítvín (má einnig nota freyðivín ef til er afgangur)
  • 1 dl mjólk/matreiðslurjómi
  • 2 tsk. kryddblanda eða saltflögur
  • 1 tsk. kapers, saxað
  • Nokkrir dropar tabasco-sósa
  • 1-2 msk. tómatsósa
  • 1 msk. sveppaduft, t.d. þurrkaður kóngssveppur mulinn í mortéli
  • Nokkrir dropar sojasósa
  • 3-5 gulrætur, mjög smátt saxaðar
  • Nýmalaður pipar
  • 2-3 dl rjómi
  • Þeyttur rjómi og steinselja til skrauts

Aðferð:

  1. Smjör brætt í djúpri pönnu eða potti. 1 tsk. kryddblanda sett á pönnuna.
  2. Humarinn látinn steikjast örstutt á góðum hita, varist að steikja of mikið, tekinn upp úr og settur á disk, vökvinn látinn renna af í pottinn aftur, þ.e. aðallega smjör með ögn af humarbragði.
  3. Soð sett í pottinn og hitað að suðu, sósujafnari hrærður út í.
  4. Hvítvín, mjólk, kapers, tabasco, sojasósa, tómatsósa, og sveppaduft sett út í og hrært.
  5. Gulrótum bætt við og látið krauma í 15 mínútur á meðalhita, gætið þess að hræra í reglulega.
  6. Rjóma bætt við ásamt afgangi af kryddblöndunni (eða saltað og piprað) og smakka til, gott að láta standa á lágum hita í 10-15 mínútur (ef tími er til).
  7. Súpan hituð að suðu, tekin af hellunni og humarinn settur út í, hægt að helminga humrana til að meira verði úr þeim, borið strax fram.
  8. Einnig má setja 3-5 humra í hverja skál og hella heitri súpunni ofan á. Þannig má koma í veg fyrir að humarinn ofeldist.
  9. Hver skál skreytt með þeyttum rjóma og persilju.
  10. Gott að hafa nýbakað brauð með súpunni.
mbl.is