Bandaríkin gerðu aðra árás í nótt á skotmark uppreisnarmanna Húta í Jemen. Hútar segja að engin meiðsli hafi orðið og heita því að svara árásunum með því að halda sínum eigin árásum áfram á flutningaskip á Rauðahafinu.

Bandaríkin og Bretland gerður árás á skotmörk víðs vegar um Jemen í fyrradag og var árásin í nótt framhald af aðgerðum þeirra á tiltekið skotmark. Í árásunum í fyrradag voru 5 uppreisnarmenn felldir.
Fjölmiðill á snærum Húta greinir frá því að Al-Dailami flugvöllurinn í Sanaa, höfuðborg uppreisnarmannanna, hafi orðið fyrir tjóni í þessari árás.
Hútar er hópur stríðsmanna sem studdur er af klerkastjórninni í Íran. Hútar ráða nú yfir stórum hluta Jemen. Á síðustu vikum og mánuðum hefur uppreisnarhópurinn ítrekað ráðist á flutningaskip á Rauðahafi bæði með eldflaugum og drónum.