Við Hlunnavog í Reykjavík er að finna glæsilega 228 fm eign á tveimur hæðum í húsi sem reist var árið 1960. Eignin skiptist í 73 fm aðalhæð, 74 fm efri hæð með óskráðu risi og 54 fm aukaíbúð.

Nýlega var bílskúrnum breytt í vel heppnaða aukaíbúð með sér inngangi. Þar má sjá glæsilegt og rúmgott eldhús sem áður var sólskáli. Stílhrein svört innrétting með stórri eyju og marmara á borðum prýðir eldhúsið. Fallegir og stórir gluggar til suðausturs og suðvesturs gefa rýminu sjarma og hleypa mikilli birtu inn.
Frá eldhúsi er gengið inn í opið alrými um skemmtilega rennihurð. Þar fær hrátt yfirbragð á gólfi og veggjum að njóta sín og skapa mikinn karakter.
Á aðalhæð hússins er bjart eldhús, rúmgóð stofa og svefnherbergi auk gestasalernis. Gengið er upp snyrtilegan steyptan stiga á efri hæð hússins, en þar er rúmgott hjónaherbergi með útgengi á svalir ásamt þremur svefnherbergjum, baðherbergi og háalofti.
Upprunalegir loftlistar prýða eignina og gefa henni mikinn sjarma auk skemmtilegra smáatriða í loftum og hurðum sem gleðja augað. Þá hefur rósettum víða verið komið fyrir við ljósastæði.
Eignin stendur á stórri lóð með 100 fm steyptri verönd til suðvesturs með heitum potti og notalegri aðstöðu. Á fasteignavef mbl.is kemur fram að í kjallara sé 60 fm íbúð með sér fastanúmeri. Ásett verð er 175 milljónir.