Matarmiklar og hollar súpur eiga vel við á þessum árstíma og þessi súpa er sérstaklega góð. Þetta er matar- og bragðmikil sæt kartöflu- og gulrótasúpa sem borin er fram með hvítlauksbrauðsteningum sem lyfta súpunni upp á hæstu hæðir. Samfélagsmiðlastjarnan Yarin Shachagi á heiðurinn af þessari guðdómlegu uppskrift sem vert er að leika eftir.
Matarmiklar og hollar súpur eiga vel við á þessum árstíma og þessi súpa er sérstaklega góð. Þetta er matar- og bragðmikil sæt kartöflu- og gulrótasúpa sem borin er fram með hvítlauksbrauðsteningum sem lyfta súpunni upp á hæstu hæðir. Samfélagsmiðlastjarnan Yarin Shachagi á heiðurinn af þessari guðdómlegu uppskrift sem vert er að leika eftir.
Sæt kartöflu- og gulrótasúpa með hvítlauksbrauðsteningum
- 1 laukur, saxaður
- 4 gulrætur, skrældar og skornar í sneiðar
- 1 meðalstór sæt kartafla, afhýdd og skorin í teninga
- 1 stk. grasker (butternut-squash) , afhýdd og skorin í teninga
- 4 salvíublöð
- 1 msk. timian
- ½ bolli kókosmjólk
- 2-3 bollar vatn eða grænmetissoð
- Salt og svartur pipar, eftir smekk
Aðferð:
- Setjið súpupott á hellu, stillið hitann á yfir meðalhita og bætið við ólífuolíu.
- Bætið salvíu ogtimianút í olíuna og steikið í 1-2 mínútur. Fjarlægðu síðan og settu til hliðar.
- Bætið lauknum í pottinn og steikið þar til hann er gullinbrúnn. Bætið síðan við gulrótasneiðum, sæt kartöflubitum og graskerbitum.
- Blandið vel saman og steikið í 1-2 mínútur í viðbót áður en vatni er bætt við.
- Bætið við vatni, aukið hitann, kryddið til með salti og pipar og eldið í um 20 mínútur eða þar til grænmetið er mjúkt.
- Þegar grænmetið hefur mýkst, bætið þá við kókosmjólk og blandið með handþeytara þar til blandan verður slétt. Smakkið til og kryddið til eftir smekk.
Hvítlauksbrauðteningar
- 4 brauðsneiðar (Brioche brauð))
- 5 hvítlauksrif, söxuð
- 1/3 bolli ólífuolía
- 1 tsk. salt
- 2 msk. ferskt rósmarín (valfrjálst)
Aðferð:
- Forhitið ofninn í200°C.
- Skeriðbriochebrauð í meðalstóra teninga.
- Blandið saman ólífuolíu, söxuðum hvítlauk og salti í skál.
- Setjið brauðteningana í blönduna þar til þeir eru vel húðaðir.
- Settu brauðið á bökunarpappír í ofnplötu og dreifðu rósmaríni ofan á eða á miðja pönnuna til að fá ilm.
- Bakið í um það bil 5 mínútur eða þar til að brauðmolarnir eru orðnir gullinbrúnir.
Meðlæti/skraut
- 1 msk. graslaukur, saxaður
- 2 tsk. kókosmjólk
- 1 msk. graskersfræ
- 2 tsk. ólífuolía
Framsetning:
- Hellið súpunni í skálar og dreypið kókosmjólk og ólífuolíu yfir.
- Skreytið með graslauk, graskersfræjum og hvítlauksbrauðteningum.
- Berið fram og njótið.