Ungir Grindvíkingar fá frítt strætókort

Eldvirkni á Reykjanesskaga | 19. janúar 2024

Ungir Grindvíkingar fá frítt strætókort

Strætó býður 12-17 ára ungmennum frá Grindavík að fá frítt strætókort sem gildir á höfuðborgarsvæðinu.

Ungir Grindvíkingar fá frítt strætókort

Eldvirkni á Reykjanesskaga | 19. janúar 2024

Stjórn Strætó tók ákvörðun um þetta í morgun.
Stjórn Strætó tók ákvörðun um þetta í morgun. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Strætó býður 12-17 ára ungmennum frá Grindavík að fá frítt strætókort sem gildir á höfuðborgarsvæðinu.

Strætó býður 12-17 ára ungmennum frá Grindavík að fá frítt strætókort sem gildir á höfuðborgarsvæðinu.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Strætó, en þar munu grindvísku ungmennin geta sótt um kortið.

Fyrir þá sem vilja nota Klapp kort þá verður hægt að fá þau í þjónustumiðstöð fyrir Grindvíkinga í Tollhúsinu við Tryggvagötu.

Haft er á eftir Jóhannesi S. Rúnarssyni, framkvæmdastjóra Strætó, að það sé „gott að geta stutt við Grindvíkinga á þessum fordæmalausu tímum“.

Stjórn Strætó tók ákvörðun um þetta í morgun og verður útfærslan á þessu í samráði við Grindavíkurbæ.

mbl.is