Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri, bauð til hátíðar í dag til að þakka samferðarfólki, samstarfsfólki, stuðningsfólki, vinum og ættingjum fyrir samfylgdina síðustu ár.

Dagur lét af embætti borgarstjóra 16. janúar, en þá tók Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins, við keflinu. Dagur situr þó enn í borgarstjórn og er nú formaður borgarráðs. Hann hefur því ekki kvatt borgarmálin fyrir fullt og allt.
Viðburðurinn fór fram í Borgarleikhúsinu kl. 15 í dag. Fjöldi fólks mætti. Meðal þeirra voru fjölmiðlamaðurinn Felix Bergmann, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingkona Pírata, Skúli Helgason borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, Baldur Þórhallsson prófessor og Dóra Björt Guðjónsdóttir borgarfulltrúi Pírata.