Þorrablót Aftureldingar fór fram í íþróttahúsinu að Varmá á laugardagskvöldið. Gríðarlega mikið stuð var á meðal Mosfellinga en 900 manns mættu á Þorrablótið. Þorrablót Mosfellinga er orðinn stórviðburður í stækkandi sveit.

Þorrablótið í Mosfellsbæ er þekkt fyrir að vera einstaklega skemmtilegt en vinahópar búa til sérstaklega mikla stemningu með því að mæta í þema og skreyta borð. Einn vinkonuhópur var klæddur eins og íslenska sumarkonan. Frumlegasta borðið var með silfurþema en matarbloggarinn Linda Ben var í hópnum.
Steindi og Auddi voru veislustjórar kvöldsins og héldu uppi stuði frá fyrstu mínútu. Geiri í Kjötbúðinni sá um glæsilega matarveislu að vanda. Jónsi í svörtum fötum og mosfellska söngkonan María Ólafs mættu með hljómsveit og skemmtu fram á nótt.
Ljósmyndari Mosfellings, Raggi Óla, tók meðfylgjandi myndir við komuna á blótið.