Mikill glamúr og gullfallegir kjólar einkenndu frumsýningu Feud: Capote vs. The Swans sem haldin var í New York-borg á þriðjudagskvöldið. Leikkonurnar sem fara með aðalhlutverk í þáttaröðinni mættu í stíl, en allar voru þær stórglæsilegar í hvítum og svörtu síðkjólum.

Feud: Capote vs. The Swans er ný þáttaröð úr smiðju meistarans Ryan Murphy sem byggir á raunverulegum atburðum úr lífi rithöfundarins Truman Capote.
Stjörnulið leikara fer með hlutverk í þáttaröðinni en hina svokölluðu „svani“ túlka þær Demi Moore, Naomi Watts, Calista Flockhart, Chloë Sevigny, Diane Lane og Molly Ringwald. Hlutverk Capote er í höndum Tom Hollander.
Hin 61 árs gamla Moore skein skært í röndóttum Balmain-kjól.
Bresk-ástralska leikkonan Naomi Watts gekk svarta dregilinn ásamt eiginmanni sínum, leikaranum Billy Crudup. Hún var stórglæsileg í kjól frá franska tískuhúsinu Givenchy.
Leikkonan sem heillaði heiminn í hlutverki sínu sem lögfræðingurinn Ally McBeal, Calista Flockhart, brosti blítt á svarta dreglinum. Flockhart klæddist afar fallegum kjól frá hönnuðinum Zuhair Murad.
Leikkonan Chloë Sevigny lýsti upp svarta dregilinn í hvítum síðkjól með stórri slaufu frá tískuhúsi Simone Rocha.
Leikkonan Diane Lane minnti helst á Hollywood-gyðjur fjórða áratugarins í þessum fagra flauelis- og silkikjól frá Christinu Ottaviano.
Leikkonan Molly Ringwald sem margir þekkja úr kvikmyndinni The Breakfast Club var stórglæsileg í skemmtilegri hönnun frá Rodarte.