Varhugaverðar aðstæður í Reynisfjöru

Óveður í janúar 2024 | 30. janúar 2024

Varhugaverðar aðstæður í Reynisfjöru

Lögreglan á Suðurlandi vekur athygli á slæmri veðurspá sem hefur áhrif á aðstæður á Suðurlandi næsta sólahringinn.

Varhugaverðar aðstæður í Reynisfjöru

Óveður í janúar 2024 | 30. janúar 2024

Reynisfjara er einn vinsælasti ferðamannastaður landsins.
Reynisfjara er einn vinsælasti ferðamannastaður landsins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglan á Suðurlandi vekur athygli á slæmri veðurspá sem hefur áhrif á aðstæður á Suðurlandi næsta sólahringinn.

Lögreglan á Suðurlandi vekur athygli á slæmri veðurspá sem hefur áhrif á aðstæður á Suðurlandi næsta sólahringinn.

Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi segir:

„Sérstaklega er bent á að aðstæður í Reynisfjöru geti reynst mjög varhugaverð. Fólki sem heimsækir Reynisfjöru er bent á að nú eru aðstæður í fjörunni metnar sem mikil hætta og rautt ljós blikkar. Enginn ætti því að fara niður af fjörukambinum niður í fjöru við þessar aðstæður. Talsvert brim er í fjörunni núna og aðstæður geta því verið hættulegar næstu tvo sólahringana.“

mbl.is