Engar flugferðir næstu klukkutímana vegna veðurs

Óveður í janúar 2024 | 31. janúar 2024

Engin flugumferð verður á Keflavíkurflugvelli næstu klukkutímana vegna veðurs. Á vef Isavia má sjá að fyrsta áætlaða koman er klukkan 17.55 og fyrsta áætlaða brottförin er áætluð 19.35.

Engin flugumferð verður næstu klukkutímana.
Engin flugumferð verður næstu klukkutímana. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Engin flugumferð verður á Keflavíkurflugvelli næstu klukkutímana vegna veðurs. Á vef Isavia má sjá að fyrsta áætlaða koman er klukkan 17.55 og fyrsta áætlaða brottförin er áætluð 19.35.

Engin flugumferð verður á Keflavíkurflugvelli næstu klukkutímana vegna veðurs. Á vef Isavia má sjá að fyrsta áætlaða koman er klukkan 17.55 og fyrsta áætlaða brottförin er áætluð 19.35.

Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, segir í samtali við mbl.is að flugvöllurinn sé nær tómur um þessar mundir.

Segir Guðjón að veðuraðgerðastjórn hafi fundað vegna veðurs og hafi í kjölfarið beint tilmælum að flugfélögunum um að veðrið í dag gæti reynst óhentugt fyrir flug. 

Guðjón gat ekki staðfest hvort að verið væri að aflýsa flugferðum eða bara fresta þeim. Hægt er að fylgjast með stöðu flugferða á vefsíðu Isavia

mbl.is