Það var sérstaklega mikil stemning á meðal Íslendinga á Tenerife um helgina en þá var íslenski barinn Nostalgía með þorrablót. Það seldist upp á þorrablótið. Voru 67 manns í mat og um 150 skemmtu sér saman seinna um kvöldið.

Herdís Árnadóttir og Sævar Lúðvíksson á Nostalgíu lögðu mikið á sig til að gera vel við Íslendinga á suðrænum slóðum.
„Allur þorramaturinn kom frá Íslandi, síldina fékk ég hér í skandinavísku búðinni. Flatkökurnar og rúgbrauðið bökuðum við sjálf. Það er mikið vesen að koma matnum út en með hjálp vina og ættingja þá komst allur matur út. Fiskikóngurinn reddaði mér svo súra hvalnum,“ sagði Herdís og bætir við að boðið verður upp á afganginn á fiskihlaðborðinu þeirra á föstudaginn, 2. febrúar.
Trúbadorinn Hlynur Snær og dóttir hans Sæbjörg Eva Hlynsdóttir sáu um að halda uppi stuðinu. „Sögðu Vestamannaeyingar að þetta væri eins og vera komin á Þjóðhátíð,“ sagði Herdís.