Við Lindarhvamm í Hafnarfirði er að finna 134 fm efri sérhæð og ris í snyrtilegu tvíbýlishúsi sem reist var árið 1963. Á hæðinni er afar sjarmerandi og bjart eldhús sem grípur strax augað.

Í eldhúsinu má sjá sérsmíðaða innréttingu frá Inngó með góðu vinnu- og skápaplássi. Innréttingin er í fagurbláum lit með stílhreinum fulningum og viðarborðplötu, en liturinn gefur rýminu bæði mýkt og ferskan blæ.
Mismunandi mynstur og áferð prýðir rýmið og býr til skemmtilegan karakter, þar á meðal eru flottar gólfflísar með Terrazzo-mynstri, stílhreinar hvítar veggflísar og fallegt rifflað gler.
Veggir eldhússins eru hvítmálaðir, en við loftið má sjá svarta loftlista sem mynda skemmtilegan kontrast í rýminu. Loftið er svo málað í mjúkum ljósum lit sem gefur einfalt og fágað yfirbragð sem fanga augað.
Eignin státar af fimm svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum, en ásett verð er 84,9 milljónir.
Sjá á fasteignavef mbl.is: Lindarhvammur 8