Íranar fordæmdu í dag árásir Bandaríkjamanna í Írak og Sýrlandi en heita ekki hefndum. Þeir segja Bandaríkin hafa gert „hernaðarleg mistök“.
Íranar fordæmdu í dag árásir Bandaríkjamanna í Írak og Sýrlandi en heita ekki hefndum. Þeir segja Bandaríkin hafa gert „hernaðarleg mistök“.
Íranar fordæmdu í dag árásir Bandaríkjamanna í Írak og Sýrlandi en heita ekki hefndum. Þeir segja Bandaríkin hafa gert „hernaðarleg mistök“.
Bandaríkjaher hæfði alls sjö staði í loftárásum sínum í gærkvöldi. Árásin var svar við drónaárás á herstöð Bandaríkjamanna í Jórdaníu síðustu helgi, þar sem þrír bandarískir hermenn féllu. Vígamannasamtök sem tengjast Íran lýstu árásinni á hendur sér.
New York Times greinir frá.
Hossein Amir Abdollahian, utanríkisráðherra Írans, segir við þarlenda miðla að árásir Bandaríkjanna séu hluti af margra áratuga tilraunum Bandaríkjamanna til að „leysa vandamál með því að reiða sig á vald og hernað.“
Fyrr í dag hafði talsmaður utanríkisráðuneytisins, Nasser Kanaani, kallað árásina „önnur hernaðarleg mistök bandarískra stjórnvalda“ og spáði því að árásirnar gerðu svæðið enn óstöðugra.
Fjögur skotmörk sem Bandaríkin hæfðu eru í Sýrlandi og þrjú í Írak. Alls var skotið á 85 skotmörk og notaði herinn í það minnsta 125 sprengjur. Að minnsta kosti 23 vígamenn í Sýrlandi féllu, að sögn sýrlensku mannréttindavaktarinnar.
Líbönsku Hezbollah-samtökin, nánustu bandamenn Írana í Mið-Austurlöndum, sögðu í yfirlýsingu að árásirnar sýndu að Bandaríkin vildu auka átökin á svæðinu, frekar en að draga úr þeim.
Abdollahian segir að árásirnar myndu aðeins gera Írak og Sýrland staðráðnari í að „frelsa lönd sín undan hernámi Bandaríkjamanna“.
Íranar fjármagna og vopna vígasveitir víðs vegar um svæðið sem eru andsnúnar áhrifum Bandaríkjamanna og Ísraelsmanna í Mið-Austurlöndunum.
Íslamska andspyrnuhreyfingin í Írak, regnhlífarsamtök sjía-vígasveita með tengingu við Íran, hafa lýst yfir ábyrgð á drónaárásinni í Jórdaníu og Bandaríkin hafa sakað ein undirsamtök þeirra, Kata'ib Hezbollah, um að standa að baki árásarinnar.
Eftir að Bandaríkjamenn sögðust í vikunni ætla að svara í sömu mynt tilkynntu Kata'ib Hezbollah að þau hygðust fresta árásum á bandarískar herstöðvar og fullyrtu að ákvarðanir sínar væru óháðar írönskum stjórnvöldum.
Önnur vígasamtök, Harakat al-Nujaba, sem eru talin vera náinn bandamaður hernaðarafla Írana, sögðu í yfirlýsingu að „íslamska andspyrnuhreyfingin mun bregðast við með því sem við á, á þeim tíma og stað sem við viljum og það er ekki endirinn.“ Þau virðast þar vitna í orð Joe Bidens Bandaríkjaforseta.