Íslenska kokkalandsliðið kom til Stuttgart í gær en Ólympíuleikarnir í matreiðslu voru settir þar í gær klukkan 17:00. Kokkalandsliðið er mætt til að bæta árangurinn sinn á síðustu Ólympíuleikum þar sem liðið náði þriðja sætinu sem er besti árangur Íslands í Ólympíuleikunum til þessa.

Snædís ræddi við myndatökumann í morgun
Snædís Xyza Mae Jónsdóttir landsliðsþjálfari leiðir liðið í þessu ferðalagi. Hún segir ekkert annað en verðlaunasæti koma til greina. Hópurinn samanstandi af reynslumiklu keppnisfólki sem og einstaklingum sem eru að fara að keppa á sínu fyrsta stórmóti. Snædís gaf sér tíma í morgun til að ræða við myndatökumann frá Morgunblaðinu.
Ætlum alla leið
Snædís hefur lengi verið tengd keppnismatreiðslu en hún tók að sér þjálfun liðsins fyrr á þessu ári. „Við ætlum okkur alla leið, þessi hópur er tilbúinn að leggja gríðarlega mikið á sig til að ná sem bestum árangri,“ segir Snædís og bendir á að æfingar hafi farið fram aðra hverja viku, þrjá til fjóra daga í senn þar sem hver æfing hafi verið um tíu til fjórtán klukkustundir.