Íslenska kokkalandsliðið náði í 3. sæti á Ólympíuleikunum í matreiðslu í Stuttgart en loka úrslitin voru tilkynnt rétt í þessu á lokahátíð leikanna. Sviss hafnaði í öðru sæti en það voru frændur vorir Finnar sem hrepptu fyrsta sætið og eru því Ólympíumeistarar í matreiðslu í ár. Þetta jafnar árangur landsliðsins hér fyrir fjórum árum en þriðja sæti er besti árangur sem Ísland hefur náð á leikunum. Fimmtíu og fimm þjóðir tóku þótt í leikunum í ár.

Liðið keppti í tveimur keppnisgreinum. Fyrri keppnisgreinin fór fram á sunnudag, „Chef´s table“, tólf manna borð með 11 rétta matseðli og seinni greinin sem fór fram í gær þriðjudag i þarf að afgreiða þriggja rétta matseðil fyrir 110 manns.
Liðið stóð sig mjög vel í báðum keppnisgreinunum og hlaut gulleinkunn fyrir þær báðar en það þýðir að liðið skilaði meira en 91 stigi af 100 mögulegum. Lokaniðurstöður dómara eru hins vegar ekki birtar fyrr en á lokadegi sem var í gær og þá eru samanlögð stig fyrir báðar greinar lagðar saman og allar keppnisþjóðirnar bornar saman.
Síðustu ár hefur íslenska kokkalandsliðið náð mjög góðum árangri bæði á heimsmeistaramótinu og á Ólympíuleikunum. Það er afrakstur markvissrar vinnu til fjölda ára og metnaður bæði hjá Klúbbi matreiðslumeistara og liðsfólki. Liðið keppti í tveimur keppnisgreinum. Fyrri keppnisgreinin fór fram á sunnudag, „Chef´s table“, tólf manna borð með 11 rétta matseðli og seinni greinin sem fór fram í gær þriðjudag i þarf að afgreiða þriggja rétta matseðil fyrir 110 manns.