Valentínusardagurinn er handan við hornið. Á þessum fallega degi er um að gera að fagna ástinni, en þótt dagurinn snúist oft um ást á milli tveggja einstaklinga þá má hann líka snúast um ástina sem er líklega hve mikilvægast að við finnum í þessu lífi – sjálfsástina!

Óskalista vikunnar prýða því 10 hugmyndir að fallegum ástargjöfum frá þér til þín.
Ef það er eitthvað eitt sem þú ættir að gera á degi ástarinnar þá er það að kaupa draumablómavöndinn þinn. Það eru margar fallegar blómabúðir sem bjóða upp á litríka og glaðlega blómvendi sem gleðja augað.
Blazer-jakkar eru ómissandi í alla fataskápa, enda tímalsaus flík með mikið notagildi. Gerðu vel við þig og splæstu í draumajakkann í tilefni dagsins!
Þessir skór eru extra kósí og geta nýst sem inniskór allan ársins hring, en á góðum sumardegi er vel hægt að skella sér í þeim út!
Vissir þú að það væri hægt að láta sér dreyma um handsápu? Þessi fallega handsápa frá Aesop er á óskalistra margra fagurkera, en hún dekrar við hendurnar um leið og hún gleður augað.
Stundum þarf ekki meira en nýjan fallegan kaffibolla til að gera daginn margfalt betri, sérstaklega yfir vetrartímann þegar við treystum á kaffið til að hlýja okkur í frostinu. Þessir fallegu bollar eru framleiddir af Guðbjörgu Káradóttur fyrir Haf Store.
Nú er langur janúarmánuður með fimm mánudögum liðinn og þá má byrja að hlakka til sumarsins! Þessir trylltu Adidas skór verða skotheldir í sumar og munu fríska upp á lúkkið.
Það er fátt betra en falleg ilmkerti á köldum vetrarkvöldum. Þetta fallega ilmkerti er frá Audo Copenhagen og passar inn í hvaða rými sem er.
Það er tilvalið að nýta dag ástarinnar í að kaupa eitthvað sem er búið að vera lengi á óskalistanum, til dæmis rúmbotn!
Þessa tösku dreymir marga um að eignast, enda fáránlega flott en samt svo einföld og klassík. Fullkomin ástargjöf frá þér til þín!
Þó það sé gaman að splæsa í eitthvað í dýrari kantinum sem er búið að vera lengi á óskalistanum þarf ástargjöfin ekki að kosta mikið. Þessir sætu sokkar eru fullkomnir fyrir þá sem vilja krúttgjöf í tilefni dagsins!