Íslenska kokkalandsliðið lauk í vikunni frábæru móti á Ólympíuleikunum í matreiðslu í Stuttgart þar sem liðið hafnaði í þriðja sæti. Heimkomu bronsverðlaunahafana var ríkulega fagnað í höfuðstöðvum Expert að Höfðabakka 7 í gær en fyrirtækið er einn af aðalstyrktaraðilum kokkalandsliðsins. Starfsmenn og sérfræðingar Expert tóku vel á móti liðinu ásamt góðum gestum m.a. forsetahjónunum.

,,Við erum í skýjunum með þennan árangur. Þetta er stórsigur út af fyrir sig. Það munaði ótrúlega litlu á efsta sæti og því þriðja. Þannig að það munaði í raun mjög litlu að við yrðum Ólympíumeistarar. En við erum gríðarlega ánægð með að ná bronsinu á sjálfum Ólympíuleikunum. Við náðum tveimur gullmedalíum sem er frábær árangur," segir Snædís Jónsdóttir, þjálfari kokkalandsliðsins.
Þetta er í annað skiptið sem Ísland lendir í þriðja sæti á Ólympíuleikum og segir Snædís að það hafi verið frábært að ná að komast aftur á verðlaunapallinn á leikunum.
Þetta er samt sem áður besti árangur íslenska kokkalandsliðsins i sögunni stigalega séð þótt landsliðið hafi áður náð 3. Sæti enda munaði ekki nema 0,1 á öðru og þriðja sæti.
Hér má sjá móttökurnar sem liðið fékk við komuna:
,,Þetta voru frábærar móttökur sem við fengum í höfuðstöðvum Expert. Það var afar ánægjulegt að sjá Guðna Th. Jóhannesson forseta og forsetafrúnna Elizu Reid, en hún er verndari kokkalandsliðsins, auk fleiri góðra gesta. Við erum þakklát fyrir þessar höfðingjalegu móttökur," segir hún.
Næsta stóra mót er heimsmeistaramótið í Lúxemborg árið 2026 og segir Snædís að það sé nánast hægt að byrja að hlakka HM til miðað við frammistöðuna á Ólympíuleikunum nú. ,,Við eigum frábært kokkalandslið og við förum full sjálfstrausts á heimsmeistaramótið," segir Snædís enn fremur.
,,Það var mjög ánægjulegt og mikill heiður að taka á móti kokkalandsliðinu eftir frábæra frammistöðu þess á Ólympíuleikunum. Íslendingar geta verið mjög stoltir af liðinu enda frábærir kokkar sem við eigum," Ástrós Kristinsdóttir, markaðsstjóri Expert.
Hér má sjá svipmyndir frá gleðinni í gær: