Um síðastliðna helgi stóðu matreiðslumeistararnir og eigendur Flóru veisluþjónustu, meistarakokkarnir Sigurjón Bragi Geirsson og Sindri Guðbrandur Sigurðsson fyrir sannkallaðri fiskiveislu í Hannesarholti sem sló í gegn. Undirrituð naut þeirra forréttinda að njóta þessarar fiskiveislu sem fór fram úr öllum væntingum.

Boðið var upp á fimm rétta fágaðan og spennandi matseðil sem endurspeglar allt það besta hráefni sem hafið og náttúran gefa eða ávextir hafsins sem útleggst. Frumleikinn og framsetning réttanna fönguðu augu og munn, matarupplifunin var himnesk fyrir bragðlaukana. Hugmyndaauðgi með bragð og útlit heilluðu mig enda frábær matarupplifun.
Sigurjón og Sindri fóru á kostum um helgina og buðu veitingagestum upp á háklassa rétti. Hlýleikinn og andrúmsloftið á staðnum var ólýsanlegt og Sigurjón kynnti réttina til leiks með sinni einstök snilld sem gerði upplifunina áhugaverðari og skemmtilegri. Þetta var einstök matarupplifun sem enginn sælkeri myndi vilja missa af.
Hér má sjá brot af því sem boðið var upp á:
Hannesarholt er einstaklega fallegt hús með sál og umvefur matargesti. Umhverfið lyftir upplifuninni upp á hæstu hæðir. Það er eitthvað við það að njóta matar og góðs félagsskapar í húsi með sál og sögu.
Þeir félagar Sigurjón og Sindri eru mjög færir í sínu fagi og hafa unnið til fjölmargra verðlauna. Vert er að geta þessa að í fyrra keppti Sigurjón í frægustu kokkakeppni heims Bocuse d´Or í Lyon og náði góðum árangri. Sindri er Bocuse d´Or kandítat 2024 og þjálfarinn enginn annar en Sigurjón. Þá kemur þekkingin og reynsla sér vel. Sindri vann jafnframt titilinn Kokkur ársins 2023.