Fjórða þáttaröð True Detective, titluð True Detective: Night Country, hefur slegið nýtt áhorfsmet í sögu framhaldsseríunnar hjá HBO. Þáttaserían sem var að stórum hluta tekin upp hér á landi var heimsfrumsýnd hinn 14. janúar síðastliðinn.

Um það bil 13 milljónir sjónvarpsáhorfenda eru að fylgjast með Jodie Foster, Kali Reis og íbúum Ennis í Alaska að meðaltali og hefur framhaldsserían aldrei séð slíkar áhorfstölur. Mesta áhorfið er sagt koma í gegnum streymisveitur en fyrstu fjórir þættirnir fengu hver um sig tæplega 700.000 áhorf á sjónvarpsstöð HBO.
Fyrsta þáttaröðin, sem skartaði þeim Matthew McConaughey og Woody Harrelson í aðalhlutverki, átti besta árangurinn fram að þessu. Tæplega 12 milljónir sjónvarpsáhorfenda fylgdust með félögunum að meðtali í upphafi True Detective-ævintýrisins sem spannað hefur áratug.
Kvikmyndafyrirtækið Truenorth birti færslu á Facebook í gærdag og deildi þessum gleðitíðindunum, enda var undirbúningur verkefnisins og tökur á fjórðu þáttaröð True Detective eitt umfangsmesta sjónvarps- og kvikmyndaverkefni sem unnið hefur verið hér á landi.
Óskarsverðlaunaleikkonan Jodie Foster fer með aðalhlutverk í þáttunum, en hún túlkar lögreglukonuna Liz Danvers. Tökur þáttanna fóru að mestu fram í Keflavík og á Dalvík, en stöðunum var breytt í smábæinn Ennis í Alaska.