Fullt var út úr lyftunni þegar Dineout stóð fyrir flottasta partíi sem haldið hefur verið á árinu á hinum glæsileg þakbar, The ROOF, á Edition hótelinu, í samstarfi við Food & Fun. Gleðin var við völd og margt var um þjóðþekkt fólk sem á það sameiginlegt að elska að snæða ljúffengan mat og drekka í sig matarmenningu af bestu gerð. Forstjóri Dineout, Inga Tinna Sigurðardóttir, opnaði formlega fyrir borðabókanir á Food & fun hátíðina 2024 við mikinn fögnuð viðstaddra og stemningin var rafmögnuð. Enda um stærsta matar- og menningarviðburð sem haldinn er hér á landi og mun hann vera stjörnum prýddum í matreiðslubransanum.

Logi, ástin hennar Ingu Tinnu, sá um að taka á móti gestum með höfðingjalegum móttökum og tók sig vel út í hlutverki gestgjafans með Ingu Tinni sinni og Óla Hall. Boðið var upp á drykki og girnilegar kræsingar sem fönguðu auga og munn gesta og ekki skemmdi fyrir stórfenglegt útsýni sem blasti við á þakbarnum þar sem Esja og fjöllin skörtuðu sínu fegursta.
Fjöldi Michelin-stjörnukokka taka þátt
Food & Fun hátíðin verður nú haldin í tuttugusta og fyrsta sinn dagana 6. - 10. mars næstkomandi og þá koma til landsins 18 framúrskarandi matreiðslumenn allsstaðar að úr heiminum og „taka yfir“ eldhús 18 mismunandi veitingastaða á höfuðborgarsvæðinu. Í ár er fjöldi Michelin-stjörnu kokka sem taka þátt ásamt mörgum spennandi og upprennandi matreiðslumeisturum sem eru að ryðja sér rúms í veitingageiranum svo matargestir Food & fun eiga von á ævintýralegum matarupplifunum þar sem bragðlaukarnir eiga svo sannarlega eftir að njóta sín á hæstum hæðum.
Í partíinu var talið niður í opnun Food & Fun síðunnar en Dineout sér um alla tæknilega útfærslu hátíðarinnar. Hulunni var svipt af stóra leyndarmálinu, nöfnum þeirra íslensku veitingastaða sem taka þátt í Food & Fun í ár ásamt því að greint var frá hvaða matreiðslumeistarar mæta til landsins að þessu sinni. Það er alltaf mikil eftirvænting og spennan í loftinu að vita hverjir það eru en í ár er listinn sterkari en nokkru sinni fyrr.
„Nú eru aðeins tveir dagar síðan við opnuðum fyrir bókanir en þær streyma inn sem aldrei fyrr og ég mæli með því að landsmenn tryggi sér borð sem fyrst þar sem aðeins rúmar tvær vikur eru í hátíðina,“ segir Inga Tinna sem er þegar farin að telja niður dagana að geta mætt í smakkið.
Óli Hall framkvæmdastjóri Food & Fun hélt erindi ásamt Ingu Tinnu í partíinu þar sem hann lýsti ánægju sinni með samstarfið við Dineout og hversu vel hefur tekist til að lyfta viðburðinum á hærra plan.
„Það hafa verið alger forréttindi að fá að alast upp með hátíðinni, allt frá því að hafa verið 8 ára gamall sofandi á skrifstofu pabba meðan restin af fjölskyldunni stóð vaktina í salnum á fyrstu Food & fun hátíðinni, yfir í það að standa hér fyrir framan ykkur í dag í forsvari fyrir tuttugustu og fyrstu Food & Fun hátíðinni,“ segir Óli hreykinn af því hve vel hefur tekist til gegnum árin að halda í þessa matarhátíð sem hefur svo sannarlega átt þátt í því að gera höfuðborg landsins, Reykjavík, að eftirsóknarverði matarborg að sækja heim.
„Við hjá Food & Fun erum gríðarlega ánægð með samstarfið við Dineout. Það eykur mikið við notendaupplifun hátíðargesta að geta nálgast allar upplýsingar um veitingastaði og gestakokka á sama stað og hægt er að bóka borð,“ segir Óli.
Inga Tinna var einnig með erindi þar sem hún talaði meðal annars um það að Dineout hefur þróað 14 mismunandi vörur frá grunni, allar tileinkaðar veitingageiranum, á síðustu 7 árum. Hún lítur á Dineout sem hluta af veitingageiranum en rekstraraðilar innan hans hafa hjálpað til við þróun fjölda lausna sem Dineout býður upp á í dag. Árangur og velgengni Dineout á því að miklu leyti að þakka. Dineout er einn af stoltum bakhjörlum Food & Fun hátíðarinnar annað árið í röð. „Okkur er mjög annt um vörumerkið okkar, Dineout, og við tengjumst ekki hverjum sem er en þegar Siggi Hall og Óli, sonur hans, höfðu samband fyrir tveimur árum, var ég fljót að taka ákvörðun um að það væri engin spurning að vinna með þeim,“ segir Inga Tinna og bætir við að samstarf þeirra hafi verið frábært í alla staði. „Mér þykir vænt um þá og fjölskyldu þeirra sem eiga allt hrós skilið fyrir þessa einstöku og flottu matarhátíð sem landinn fær að njóta og erlendir gestir.“ segir Inga Tinna að lokum.
Hér má sjá hvað verður í boðið á Food & Fun.
Matarvefurinn mun birta nánari upplýsingar um kokkana sem taka þátt í hátíðinni í aðdraganda hennar núna næstu daga og gefa lesendum góða innsýn í hvað verður í boði. Ljóst er að hér verður um háklassa viðburð í matarheiminum að ræða og fram undan eru spennandi matarupplifanir sem eiga eftir að skapa nýjar minningar fyrir matarástina.