Júlía Navalnaja: Pútín mun bera ábyrgð

Al­ex­ei Navalní | 18. febrúar 2024

Júlía Navalnaja: Pútín mun bera ábyrgð

Júlía Navalnaja hafði ekki séð eiginmann sinn Alexei í tvö ár er hann lést í rússneskri fanganýlendu í fyrradag. Sama dag og fréttir bárust af andlátinu ávarpaði hún blaðamenn á öryggisráðstefnu í Munchen í Þýskalandi.

Júlía Navalnaja: Pútín mun bera ábyrgð

Al­ex­ei Navalní | 18. febrúar 2024

Júlía Navalnaja á blaðamannafundinum í Munchen.
Júlía Navalnaja á blaðamannafundinum í Munchen. AFP

Júlía Navalnaja hafði ekki séð eiginmann sinn Alexei í tvö ár er hann lést í rússneskri fanganýlendu í fyrradag. Sama dag og fréttir bárust af andlátinu ávarpaði hún blaðamenn á öryggisráðstefnu í Munchen í Þýskalandi.

Júlía Navalnaja hafði ekki séð eiginmann sinn Alexei í tvö ár er hann lést í rússneskri fanganýlendu í fyrradag. Sama dag og fréttir bárust af andlátinu ávarpaði hún blaðamenn á öryggisráðstefnu í Munchen í Þýskalandi.

„Ef þetta er satt, þá vil ég að Pútín og teymið hans, vinir Pútíns og ríkisstjórn hans viti að þau munu bera ábyrgð á því sem þau gerðu við landið okkar, fjölskylduna mína og eiginmann minn,“ sagði Júlía með tárin í augunum. 

„Og þessi dagur verður bráðlega.“

Sama dag og fregnir af andláti Navalnís bárust.
Sama dag og fregnir af andláti Navalnís bárust. AFP

Skrifaði bréf á hverjum degi 

Parið kynntist í fríi í Tyrklandi og giftu sig árið 2000. Saman eiga þau dótturina Daríu Navalnaja og soninn Zakhar. 

Í janúar árið 2021 var Navalní handtekinn strax við komuna til Rússlands, en hafði þá ekki komið til heimalandsins í nokkra mánuði eftir að eitrað var fyrir honum.

Júlía reyndi að skrifa honum bréf á hverjum einasta degi í þessi tvö ár. 

Hjónin árið 2020.
Hjónin árið 2020. AFP

Síðustu skilaboðin sem Navalní sendi á eiginkonu sína opinberlega birtust á Valentínusardaginn, tveimur dögum áður en hann lést. 

„Mér líður eins og þú sért með mér á hverju einasta augnabliki,“ ritaði Navalní. 

Fyrsta færslan sem Júlía birti á samfélagsmiðlum eftir að fregnir af andlátinu bárust var mynd af þeim saman og með stóð: „Ég elska þig“.

mbl.is