Tónlistarkonan Laufey Lín Jónsdóttir er á tónleikaferðalagi um þessar mundir. Hún kom fram í Lundúnum í Bretlandi í gær þar sem hún söng óvænt með tónlistarmanninum Tom Odell við mikil fagnaðarlæti áhorfenda.

Odell er Brit-tónlistarverðlaunahafi sem hefur notið mikilla vinsælda um allan heim. Hann hefur komið tvisvar sinnum fram á tónleikum á Íslandi, fyrst árið 2014 og síðan árið 2016. Hann á þekkta smelli á borð við Another Love, Black Friday og Heal.
Odell birti myndband frá tónleikunum á Instagram-síðu sinni, en þar sést Laufey kynna hann inn á sviðið. „Ég er með eitt óvænt í viðbót fyrir ykkur. Mig langar að bjóða Tom Odell að koma og syngja með mér,“ sagði hún á sviðinu og mikil fagnaðarlæti brutust út. Við myndbandið skrifaði Odell: „Yndislegt að syngja Black Friday með þér Laufey.“
Í ummælum undir myndbandið sagði Laufey dúettinn hafa verið hápunkt vikunnar. „Ég elska að syngja með þér!“ bætti hún við.
Laufey birti einnig myndband af dúettinum á TikTok-síðu sinni með yfirskriftinni: „Ég bauð Tom Odell á tónleikana mína í Lundúnum og hann samþykkti að koma upp á svið og syngja dúett með mér.“ Þau tóku eitt af þekktustu lögum Odells á hugljúfan máta.