Hvíta húsið fer fram á að rússnesk yfirvöld afhendi móður Alexei Navalnís lík sonar síns svo hún geti minnst hans á réttan hátt.

Ljúdmíla Navalnaja, móðir Navalnís, heimsótti fanganýlendu norðan við heimskautsbaug þar sem hann lést, morguninn eftir að tilkynnt var um andlátið, en var þá meinað að sjá lík Navalnís.
Í dag var hún þó boðuð í líkhús þar sem hún undirritaði dánarvottorð hans.
Hún kvaðst ósátt við yfirvöld í Rússlandi sem hún segir að séu að taka fram fyrir hendur sínar með því að ætla að ákveða staðsetningu, tímasetningu og hátterni útfararinnar.
„Rússar verða að láta hana hafa son sinn,“ segir John Kirby, talsmaður Hvíta hússins í þjóðaröryggismálum, við APF.
Segir hann það ekki síður mikilvægt til þess að móðir Navalnís fái að syrgja son sinn, minnast hugrekki hans, kjarks og starfa.