Myndlistarmaðurinn Ragnar Kjartansson opnaði sýninguna Móðir og barn, gin og tónik í i8 galleríi á fimmtudaginn. Fjöldi fólks mætti til að fagna með Ragnari og var fullt út úr dyrum í opnunarhófinu.

Fólk úr listalífinu, viðskiptalífinu sem og stjórnmálaheiminum mætti. Tónlistarmennirnir Jakob Frímann Magnússon og Víkingur Heiðar Ólafsson létu sig ekki vanta. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, var einnig á svæðinu ásamt Guðmundi Kristjánssyni í Brim. Skúli Mogensen og Gríma Björg Thorarensen virtu einnig fyrir sér verk Ragnars.
Ragnar hefur farið víða um heim með innsetningar sínar að undanförnu en í Móðir og barn, gin og tónik einbeitir hann sér að málverkinu. „Hann graðkar í sig stemningum úr vinnustofunni og heimilinu og færir þær með olíu á striga. Einhvers konar kyrrð ríkir í mannlausum verkunum en óreiðan ber vitni um sýsl og basl á undan og eftir,“ segir tilkynningu um sýninguna sem stendur til 20. apríl.