Gabríel Kristinn Bjarnason landsliðskokkur er þekktur fyrir að gera syndsamlega góða eftirrétti og hann ætlar að gleðja sína konu á konudaginn á sunnudaginn með einum slíkum. Hann er nýkominn heim frá Stuttgart þar sem hann var með íslenska kokkalandsliðinu að keppa á Ólympíuleikunum í matreiðslu og eins og frægt er orðið kom liðið hlaðið verðlaunum heim.

Hvernig var upplifunin að ná þessum glæsta árangri með íslenska kokkalandsliðinu á Ólympíuleikunum í matreiðslu í Stuttgart í febrúar?
„Það var ótrúlega góð tilfinning að ná markmiðunum sem voru sett fyrr á þessu ári, og það að koma úr þessu móti sem þriðja sterkasta kokkalandslið heims. Það fyllir mann að stolti að koma heim með tvær gull medalíur,“ segir Gabríel og brosir breitt.
Hver verða næstu skref í keppnismatreiðslunni hjá þér?
„Ég ætla að taka mér smá frí frá keppni í bili en ég er þessa dagana að þjálfa nema ársins sem stefna á að keppa um að vera keppninni um að vera bestu nemar Norðurlandanna sem haldin verður í apríl næstkomandi í Helsinki.“
Nú er konudagurinn fram undan um helgina, ætlar þú að dekra við þína konu í tilefni hans á sunnudaginn?
„Já, klárlega, ég ætla að henda í skemmtilegan rósavínsdesert, opna eina góða flösku og kannski fær hún blómvönd, hver veit,“ segir Gabríel.
Ertu til í að svipta hulunni af uppskriftinni að desertinum sem þú ætlar að töfra fram?
„Já, ég er til í það og get lofað að þessi hittir í mark. Þetta er desert sem ég bjó til fyrir nokkrum árum síðan sem sló í gegn á veitingastaðnum Héðni Restaurant sem er staðsettur við Seljaveg í gamla Vesturbænum og hef ég haldið áfram að gera þennan síðan,“ segir Gabríel og bætir við að þessi réttur slái ávallt í gegn þegar hann býður upp á hann í matarboði.
Rósavínsdesert að hætti Gabríels
Fyrir 2-4
Skyr mús
Aðferð:
Lakkrís krem
Aðferð:
Rósavín krap
Aðferð:
Samsetning: