Breski áhugaljósmyndarinn Nima Sarikhani sigraði ljósmyndakeppnina „Wildlife Photographer of the Year“ í flokki „People's Choice“ fyrr í þessum mánuði. Sigurmyndina tók hann á ferðalagi sínu um Svalbarða en hún sýnir friðsælan sofandi ísbjörn á jökultoppi.

25 ljósmyndir áttu möguleika á að sigra keppnina og bárust yfir 75.000 atkvæði frá áhugafólki um ljósmyndun alls staðar að úr heiminum. Metþátttaka var í netkosningu í ár.
Sarikhani hafði leitað að ísbirni í þrjá daga þegar hann kom loksins auga á stjörnu ljósmyndarinnar. Hann fylgdist með birninum í dágóða stund og var það rétt fyrir miðnætti að ísbjörninn klifraði upp á lítinn ísjaka, bjó sér til svefnpláss og fór að sofa.
Sarikhani greip í myndavélina og náði þessu magnaða augnabliki sem heillað hefur heiminn. Ljósmyndin hefur hlotið heitið „Ice Bed“.
Forstöðumaður Náttúruminjasafns Bretlands (e. Natural History Museum), Dr. Douglas Gurr, sagði eftirfarandi um sigurmyndina: „Ljósmyndin sýnir óaðskiljanleg tengsl dýrs og búsvæðis þess og þjónar einnig sem þörf áminning um skaðleg áhrif loftlagshlýnunar og tap búsvæða“.