Mygla greinst í Stjórnsýsluhúsinu

Mygla í húsnæði | 25. febrúar 2024

Mygla greinst í Stjórnsýsluhúsinu

Mygla hefur greinst í Stjórnsýsluhúsi Norðurþings á Húsavík. 

Mygla greinst í Stjórnsýsluhúsinu

Mygla í húsnæði | 25. febrúar 2024

Stjórnsýsluhúsið á Húsavík.
Stjórnsýsluhúsið á Húsavík. mbl.is/Hafþór Hreiðarsson

Mygla hefur greinst í Stjórnsýsluhúsi Norðurþings á Húsavík. 

Mygla hefur greinst í Stjórnsýsluhúsi Norðurþings á Húsavík. 

Í samtali við RÚV sagði Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri Norðurþings, að húsið við Ketilsbraut væri komið til ára sinna og að starfsfólk hefði grunað um nokkurt skeið að raki væri í húsinu.

Fann fyrir óþægindum

Niðurstaða greiningar Verkís leiddi í ljós að mygla er á þremur stöðum, en kjallari hússins er verst farinn. Einn starfsmaður fann fyrir óþægindum eftir viðveru í húsinu og vinnur nú heiman frá. Að öðru leyti hefur myglan lítil áhrif á starfsemina. 

Í fundargerð byggðarráðs Norðurþings frá 15. febrúar segir að ráðið feli sveitarstjóra að vinna að því að finna lausn á framtíðar húsnæðismálum stjórnsýslunnar á Húsavík með það að markmiði að hagræða í húsakosti sveitarfélagsins.

Að sögn Katrínar mun byggðarráð fjalla um málið á fimmtudag og þá vonandi skýrist hvort að bæjarskrifstofunnar verði fluttar. 

mbl.is