Fjóla Sigurðardóttir, fyrrverandi stjórnandi hlaðvarpsins Eigin konur, og knattspyrnumaðurinn Ívar Örn Árnason eignuðust sitt fyrsta barn saman þann 9. janúar síðastliðinn. Nú hafa þau gefið syninum nafn.

Fjóla og Ívar tilkynntu nafnið í sameiginlegri færslu á Instagram þar sem þau birtu fallega mynd af syninum. Hann fékk nafnið Bjarki Bent Ívarsson.
Parið sagði frá því að þau ættu von á barni á skemmtilegan máta í júní 2023, en Ívar spilar með KA á Akureyri í bestu deild karla í knattspyrnu á meðan Fjóla spilaði áður með Fram.
„Félagskiptaglugginn opnaði fyrr í H3 og við höfum gert 18 ára samning við mjög efnilegan leikmann sem kemur til leiks snemma í janúar. Ekki er vitað um þyngd, hæð eða kyn leikmannsins eins og stendur en fleiri upplýsingar verða tilkynntar seinna,“ skrifuðu þau við skemmtilega mynd.
Fjölskylduvefur mbl.is óskar þeim innilega til hamingju með nafnið!