Brim hf. hagnaðist um 62,9 milljónir evra á síðasta ári, jafnvirði 9,4 milljarða króna. Er þetta um 20% minni hagnaður árið 2022 þegar hann nam 79,3 milljónir evra. Heildareignir félagsins jukust um sjö milljónir evra milli ára og enduðu í 949,7 milljónum evra, jafnvirði rúmlega 142 milljarða íslenskra króna.

Þetta má lesa í tilkynningu í tilefni af ársreikningi Brims sem birtur var fyrir helgi.
Leggur stjórn félagsins til að aðalfundur Brims, sem haldinn er 21. mars, samþykki arðgreiðslu til hluthafa sem nemur tveimur krónum á hlut, eða 3,8 milljarða króna.
Á vef Brims segir að „rekstur botnfisksviðs á árinu skilaði lægri framlegð en undanfarin tvö ár einkum vegna aðstæðna á mörkuðum þar sem þrýstingur var á afurðaverð. Verð á sjófrystum þorskafurðum lækkuðu einna mest en verð á landunnum afurðum hélst nokkuð stöðugt. Nokkrar breytingar urðu í úthlutun á aflaheimildum kvótaárið 2023/2024.“
Þá segir að vel hafi gengið í veiðum og vinnslu uppsjávarfisks árið 2023. „Vel gekk að selja loðnuhrygnu en það hægði töluvert á loðnuhrognasölu og einnig varð töluverð verðlækkun á loðnuhrognum vegna mikillar framleiðslu. Hægar gekk að selja loðnuhæng en áætlað var vegna ástands á landamærum Póllands og Úkraínu. Sala á makrílafurðum gekk vel og voru verð sambærileg milli ára 2022 og 2023. Mikil eftirspurn var eftir síldarafurðum og voru verð hærri en árið áður. Markaðir fyrir mjöl og lýsisafurðir voru mjög sterkir og afurðaverð góð.“
Við árslok 2023 voru skip Brims tíu talsins og nam afli skipanna 44 þúsund tonnum af botnfiski og 165 þúsund tonnum af uppsjávarfiski sem er um þúsund tonnum meira í báðum tegundaflokkum en skipin veiddu 2022.
Í apríl var gengið frá viðskiptum vegna kaupa Brims á 50% eignarhlut í danska félaginu Polar Seafood Denmark A/S (PSD). PSD er sölufyrirtæki, vinnsluaðili og útflytjandi sjávarafurða úr Norður-Atlantshafi. KAupverðið var um 12 milljarðar íslenskra króna.
„Rekstur Brims var traustur á árinu 2023 þó gengið hafi á með skini og skúrum í starfsemi félagins. Heimildir til veiða jukust á sumum fisktegundum en minnkuðu á öðrum og hurfu jafnvel eins og á djúpkarfa en þær veiðar voru skyndilega bannaðar eins og þruma úr heiðskíru lofti. Á okkar erlendu mörkuðum eru aðstæður misjafnar. Sumstaðar eru háð stríð og stjórnarfar er ótryggt og víða geisar verðbólga sem hefur margvísleg áhrif á viðskiptavini okkar,“ segir Guðmundur Kristjánsson forstjóri Brims í tilkynningunni.
Hafi á árinu komið í ljós sá styrkur sem felst í fjölbreyttum rekstri, að sögn hans, þar sem afkoma uppsjávarsviðs var góð á meðan rekstur botnfisksviðsins var erfiðari.
„Óvissan í rekstri á sjávarútvegsfyrirtæki er margvísleg ekki síst þegar stríð geisa nærri mörkuðum okkar í Evrópu og heimsbyggðin öll glímir við verðhækkanir og verðbólgu. Hér á landi bætir síðan í alla óvissu þegar stjórnsýsla og stjórnvöld boða ítrekað breytingar á forsendum í rekstri greinarinnar og þeirri umgjörð sem fyrirtækin hafa lagað sig að í áratugi. Öll hagnýting auðlinda kallar á langtímahugsun og fjárfestingar sem borga sig upp á áratugum. Stöðugleiki skapar forsendur fyrir aukinni arðsemi,“ segir Guðmundur