Lára G. Sigurðardóttir, læknir og eigandi Húðarinnar, skrifar um áfengisneyslu og hvaða áhrifa hún hefur á húðina í sínum nýjasta pistli á Smartlandi.
Lára G. Sigurðardóttir, læknir og eigandi Húðarinnar, skrifar um áfengisneyslu og hvaða áhrifa hún hefur á húðina í sínum nýjasta pistli á Smartlandi.
Lára G. Sigurðardóttir, læknir og eigandi Húðarinnar, skrifar um áfengisneyslu og hvaða áhrifa hún hefur á húðina í sínum nýjasta pistli á Smartlandi.
„Ég ætla að hætta að drekka á morgun“ hljómar kunnuglega, en ekki einungis undir tónum slagarans Blindfullur eftir Valgeir Guðjónsson og Sigurð Bjólu. Segja má að við mennirnir höfum átt í stormasömu sambandi við áfengi í yfir 9.000 ár, en við byrjuðum að brugga áfengi löngu áður en við fórum að skrifa. Líkt og með önnur fíkniefni nær áfengi heljartökum á heilanum. Við notum allskonar afsakanir til að fá okkur í glas. Í huganum hljóma setningar eins og: „Fyrst Frakkar drekka daglega, þá hlýtur að vera í lagi að ég geri það“ eða „Ég á skilið smá verðlaun í kvöld“. Svo er áfengi í aðalhlutverki í flestum samkomum. Togstreita magnast milli þess hluta heilans sem stjórnar hvötum og þess sem sér um að hafa vit fyrir okkur. Að dreyma um góðar stundir með vínglas um hönd togast á við veruleikann að víninu fylgir fórnarkostnaður. Það getur því orðið þrautinni þyngra að stjórna sopanum. Stephen King, sem er edrú í dag, lýsti þessu sambandi vel: „Það að segja alkóhólista að hætta að drekka er eins og að segja manni með ræpu að halda í sér“.
Að skoða sambandið við áfengi gagnast ekki bara þeim sem veikjast af áfengissýki. Vínandi - í hvaða umbúðum sem hann kemur: bjór, léttvíni eða sterku - er nefnilega þekkt eitur sem hefur víðtæk áhrif. Etanól er smágert fitu-og vatnsleysanlegt efnasamband sem smeygir sér óhindrað inn í allar frumur líkamans og hefur með því áhrif á starfsemi húðarinnar. Með því að halda sig frá áfengi (eða nota það í miklu hófi) stuðlum við því að heilbrigðari húð með ýmsum hætti:
Hversu mikil áhrif áfengi hefur á húðina er vissulega einstaklingsbundið og ræðst m.a. af áfengismagni, erfðum og lengd neyslu. Einhver getur verið smeykur að taka skrefið í átt að vínlausum eða vínlitlum lífsstíl, en þeir sem hafa fetað þann veg vita að hinum megin bíður skýr hugur og skapandi hjarta, líkt og heimspekingurinn Gunnar Hersveinn fjallar um í nýútkominni bók sinni, Vending. Mig langar hér að bæta við ljómandi húð - því það sést sannarlega oft fyrst á húðinni hver drekka áfengi.