SKE fer offari

Síldarvinnslan | 29. febrúar 2024

SKE fer offari

„Okkur finnst eftirlitið fara offari að telja tilefni til að skoða tengsl núna vegna viðskipta með sölufyrirtæki sem er eingöngu starfandi á erlendum mörkuðum,“ segir Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, um þá ákvörðun Samkeppniseftirlitsins (SKE) að hefja rannsókn á því hvort líta beri á Síldarvinnsluna og Samherja Ísland ehf. sem eitt og sama fyrirtækið.

SKE fer offari

Síldarvinnslan | 29. febrúar 2024

Gunnþór Ingvason.
Gunnþór Ingvason. Ljósmynd/Aðsend/Birgir Ísleifur Gunnarsson

„Okkur finnst eftirlitið fara offari að telja tilefni til að skoða tengsl núna vegna viðskipta með sölufyrirtæki sem er eingöngu starfandi á erlendum mörkuðum,“ segir Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, um þá ákvörðun Samkeppniseftirlitsins (SKE) að hefja rannsókn á því hvort líta beri á Síldarvinnsluna og Samherja Ísland ehf. sem eitt og sama fyrirtækið.

„Okkur finnst eftirlitið fara offari að telja tilefni til að skoða tengsl núna vegna viðskipta með sölufyrirtæki sem er eingöngu starfandi á erlendum mörkuðum,“ segir Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, um þá ákvörðun Samkeppniseftirlitsins (SKE) að hefja rannsókn á því hvort líta beri á Síldarvinnsluna og Samherja Ísland ehf. sem eitt og sama fyrirtækið.

Tilefni ákvörðunarinnar er sagt vera kaup Síldarvinnslunnar á helmingshlut í sölufélagi Samherja, Ice Fresh Seafood. Gunnþór kveðst vera undrandi á því að SKE telji nauðsynlegt að athuga eignatengsl fyrirtækjanna og áhrif þess að félagið fari ásamt Samherja með sameiginleg yfirráð yfir Ice Fresh Seafood.

Páll Gunnar Pálsson forstjóri SKE segir við Morgunblaðið að aðeins sé verið að kanna þessi kaup og engin niðurstaða sé komin í málið. 

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag

mbl.is