Hundruð stilltu sér upp í röð og biðu færis að votta rússneska stjórnarandstæðingnum Alexai Navalní virðingu sína fyrir útför hans sem gerð verður í höfuðborginni Moskvu í dag.

Hefur lögregla uppi mikinn viðbúnað við kirkjuna sem er í suðurhluta Moskvu en þar var Navalní til heimilis.
Hann lést í prísund sinni í fanganýlendunni FKU IK-3 í þorpinu Kharp í sjálfsstjórnarhéraðinu Okurg 16. febrúar, að sögn stuðningsfólks hans örskömmu áður en til stóð að hafa skipti á honum og öðrum Rússa, leyniþjónustumanninum Vadím Krasíkov, sem Þjóðverjar hafa í haldi í Berlín.