„Það bárust fréttir af því í vikunni að leikmenn Manchester United væru að gera ráð fyrir því að Erik ten Hag yrði ekki áfram með liðið á næstu leiktíð og hann virkar eitthvað hálf bugaður á hliðarlínunni þessa dagana,“ sagði þáttastjórnandinn Bjarni Helgason í Fyrsta sætinu þegar rætt var um enska boltann.

Manchester United tapaði illa fyrir nágrönnum sínum í Manchester City í stórleik 27. umferðar deildarinnar á Etihad-vellinum í Manchester á sunnudaginn, 3:1, en City var mun sterkari aðilinn í leiknum.
„Skipulagður sóknarleikur United var varla til staðar og eini sóknarmöguleiki liðsins kom þegar André Onana reyndi að þruma boltanum langt upp völlinn,“ sagði Aron Elvar Finnsson, íþróttablaðamaður á mbl.is og Morgunblaðinu.
„Mér finnst Erik ten Hag vera farinn að þreytast og ég er ekki viss um að hann endist mikið lengur á Old Trafford en út þetta tímabil,“ sagði Aron Elvar meðal annars.
„Mér fannst uppleggið hjá United í þessum leik benda til þess að liðið væri í 16.-17. sæti,“ sagði Jökull Þorkelsson, íþróttablaðamaður á mbl.is og Morgunblaðinu, meðal annars.