Laufey Lín Jónsdóttir, söngkona og lagahöfundur, prýðir forsíðuna á nýjasta hefti tímaritsins Female í Singapúr. Heftið, sem er titlað „The Celebrity Edition“, heiðrar nokkra listamenn Z-kynslóðarinnar sem þykja hafa skarað fram úr á liðnu ári.

Djasssöngkonan var ljósmynduð af tískuljósmyndaranum Olivier Simille og klæddist fallegum flíkum frá ítalska tískuhúsinu Miu Miu. Laufey deildi myndum úr tökunni á Instagram-síðu sinni á þriðjudag.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem djasssöngkonan prýðir forsíðu á erlendu tímariti. Hún sat fyrir á forsíðumynd eins þekktasta tónlistartímarits í heimi, Billboard, fyrr á þessu ári.
Hin 24 ára gamla Laufey er og hefur verið á sannkallaðri sigurför um heiminn. Unga söngkonan var á dögunum gestur í hlaðvarpi stórstjörnunnar Eltons Johns, Rocket Hour.
Í þættinum lofsamar John tónlist Laufeyjar og hrósar henni í hástert. Þau ræddu meðal annars um yfirstandandi tónleikaferðalag hennar, en hún fór beinustu leið í tónleikaferðalag af Grammy-verðlaunahátíðinni í Los Angeles þar sem hún hlaut sín fyrstu Grammy-verðlaun.