Venesúelska samfélagsmiðlastjarnan Eleonora Pons, betur þekkt sem Lele Pons á YouTube og Instagram, er stödd á Íslandi um þessar mundir ásamt góðvinum sínum. Pons hefur átt ævintýralega daga hér á klakanum og fór meðal annars í hestaferð með Mr. Iceland og upplifði töfra Seljalandsfoss og nágrennis.

Pons hefur verið dugleg að birta myndir og myndskeið frá Íslandsferðinni með fylgjendum sínum á Instagram. Mörg myndskeiðanna innihalda íslenska hestinn og hefur hún greinilega heillast af dýrinu. Pons sést á gangi um hesthús, á hestbaki og að teyma hest.
Síðastliðna helgi fékk samfélagsmiðlastjarnan að kynnast íslenska næturlífinu en hún skemmti sér drottningarlega á íslenska skemmtistaðnum Exit í Austurstræti. Þar sást til hennar dansa uppi á sviði staðarins við mikinn fögnuð viðstaddra.
Pons er vel þekkt meðal íslenskra ungmenna. Hún er með yfir 55 milljónir fylgjenda á Instagram. Pons varð fyrst þekkt fyrir grínmyndbönd sín á samfélagsmiðlinum Vine en færði sig síðar yfir á YouTube. Þá leikur hún í raunveruleikaþáttunum The Secret Life of Lele Pons og hefur einnig tekið að sér verkefni sem söngkona.