Love is Blind-stjarnan Jessica Vestal fór í rómantíska ferð til Mexíkó með Too Hot To Handle-stjörnunni Harry Jowsey aðeins nokkrum mánuðum eftir tökur á sjöttu þáttaröð Love is Blind á Netflix.

Vestal hefur vakið þó nokkra athygli í raunveruleikaþáttunum sem hún ákvað að yfirgefa eftir að maðurinn sem hún féll fyrir, Jimmy Presnell, bað Chelsea Blackwell um að giftast sér.
Þrátt fyrir að Vestal hafi yfirgefið þættina í ástarsorg fyrir nokkrum mánuðum virðist hún hafa náð að jafna sig ef marka má myndir sem birtust vef Page Six af henni og Jowsey í Mexíkó.
Myndirnar hafa komið sumum aðdáendum hennar á óvart, en Vestal gaf nýverið í skyn að hún væri að stinga saman nefjum með öðrum keppanda úr þáttaröðinni. Hún vildi þó ekki gefa upp hver það væri.