Stjörnurnar klæddust sínu allra fínasta pússi þegar þær mættu á Óskarsverðlaunahátíðina í gærkvöldi. Falleg og klassísk snið voru áberandi sem og ljósir litir þó svo að nokkrar stjörnur hafi ákveðið að mæta í svörtu.

Leikkonan Carey Mulligan fór tómhent heim af Óskarsverðlaunahátíðinni en sigraði að mati margra rauða dregilinn. Mulligan klæddist kjól í anda gömlu Holllywood en Balanciaga endursaumaði hönnun frá 1951 á hana. Upprunalegi kjóllinn er á fatahönnunarsafninu Kyoto Costume Institute.
„Ég held að þetta sé uppáhaldskjóllinn minn,“ sagði Mulligan í viðtali við Vogue tveimur dögum fyrir Óskarinn. „Hann er ótrúlegur í sniðinu og svo klassískur en er líka mjög nútímalegur,“ sagði leikkonan sem sagði kjólinn einnig vera þægilegan. „Ég þarf ekki að sitja og halda inni í mér andanum í þrjá klukkutíma.“