Í Auchterarder í Skotlandi er að finna sjarmerandi fimm stjörnu fjölskylduhótel, Gleneagles, umvafið einstöku landslagi. Hótelið var stofnað árið 1924 og býður gestum upp á alvöru skoska upplifun.

Hótelið er innréttað á skemmtilegan máta og býður upp á fjölbreytta skemmtun fyrir ævintýrafólk á öllum aldri. Á hótelinu er töfrandi leikherbergi fyrir yngstu ferðalangana, en á meðan þeir fá útrás í leiktækjunum geta foreldrarnir látið streituna líða úr sér í notalegri heilsulind.
Umhverfis hótelið er sannkölluð náttúru- og útivistarparadís sem mætti helst líkja við leikvöll fyrir alla aldurshópa, en fjölbreytt afþreying er í boði í sveitinni – allt frá jeppaferðum á guðdómlegum Land Rover Defender-jeppa yfir í hjólaferðir, veiði, golf og hestaferðir. Þeir yngstu geta meira að segja skellt sér í eigin jeppaferð á mini-jeppa og fengið upplifunina beint í æð.
Eftir langan dag af ævintýrum er svo hægt að hafa það notalegt uppi á herbergi, en hótelið hefur verið innréttað í sjarmerandi sveitastíl með lúxus yfirbragði.