Sindri Snær Birgisson var í dag dæmdur í tveggja ára fangelsi í hryðjuverkamálinu svokallaða. Ísidór Nathansson hlaut átján mánaða dóm. Voru þeir dæmdir fyrir brot gegn vopnalagagjöf, en sýknaðir af tilraun til hryðjuverka og hlutdeild í tilraun til hryðjuverka. Þetta kom fram í Héraðsdómi Reykjavíkur nú fyrir skemmstu. Dregst gæsluvarðhald sem hann sætti frá fangelsisdóminum.
Sindri Snær Birgisson var í dag dæmdur í tveggja ára fangelsi í hryðjuverkamálinu svokallaða. Ísidór Nathansson hlaut átján mánaða dóm. Voru þeir dæmdir fyrir brot gegn vopnalagagjöf, en sýknaðir af tilraun til hryðjuverka og hlutdeild í tilraun til hryðjuverka. Þetta kom fram í Héraðsdómi Reykjavíkur nú fyrir skemmstu. Dregst gæsluvarðhald sem hann sætti frá fangelsisdóminum.
Sindri Snær Birgisson var í dag dæmdur í tveggja ára fangelsi í hryðjuverkamálinu svokallaða. Ísidór Nathansson hlaut átján mánaða dóm. Voru þeir dæmdir fyrir brot gegn vopnalagagjöf, en sýknaðir af tilraun til hryðjuverka og hlutdeild í tilraun til hryðjuverka. Þetta kom fram í Héraðsdómi Reykjavíkur nú fyrir skemmstu. Dregst gæsluvarðhald sem hann sætti frá fangelsisdóminum.
Einnig voru gerð upptæk ýmis tæki, vopn og annar búnaður sem var í fórum mannanna.
538 dagar eru síðan lögreglan fór í aðgerðir sem enduðu með handtöku og síðar ákæru þeirra Sindra og Ísidórs. Var um aðgerðir í Mosfellsbæ og Kópavogi að ræða, en í kjölfarið barst tilkynning frá ríkislögreglustjóra þar sem greint var frá því að fjórir einstaklingar hefðu verið handteknir „og hættuástandi afstýrt“.
Í tilkynningunni sagði að mennirnir hefðu verið handteknir í tengslum við yfirstandandi rannsókn embættisins á brotum sem snéru að landráðum og brotum gegn stjórnskipan ríkisins og æðstu stjórnvöldum þess.
Upphaflega var ákært í málinu í desember 2022, en þar var Sindri ákærður fyrir tilraun til hryðjuverka og stórfelld brot gegn vopnalöggjöf. Ísidór var ákærður fyrir hlutdeild í tilraun til hryðjuverka og stórfelld brot gegn vopnalöggjöf.
Lögmenn sögðu ákæruna vera óskýra er kæmi að hryðjuverkaliðnum. Málið var þingfest í janúar árið 2023 og neituðu mennirnir báðir sök er kom að hryðjuverkahluta ákærunnar.
Við þingfestingu tilkynnti dómari að hann myndi taka til skoðunar hvort vísa ætti ákæruliðum er sneru að skipulagi hryðjuverka frá. Í kjölfarið fór fram þinghald þar sem það var rætt og í febrúar ákvað dómari að Sindri og Ísidór yrðu ekki ákærðir fyrir undirbúning hryðjuverka.
Héraðssaksóknari kærði úrskurð héraðsdóms til Landsréttar. Landsréttur staðfesti hins vegar úrskurðinn.
Í júní gaf héraðssaksóknari síðan út nýja ákæru á hendur Sindra og Ísidóri. Karl Ingi Vilbergsson, saksóknari hjá embætti héraðssaksóknara, sagði þá í samtali við mbl.is að nýja ákæran hafi verið unnin í samræmi við leiðbeiningar frá Landsrétti.
Núgildandi ákæra er tólf blaðsíðna löng og er því lýst í 64 liðum hvernig mennirnir tveir ætluðu sér að fremja hryðjuverk.
Sindri var talinn hafa sýnt ásetning til hryðjuverka „ótvírætt í verki“ á tímabilinu maí til september 2022. Hann hafi framleitt og aflað sér skotvopna, skotfæra og íhluta í skotvopn og sótt, móttekið og tileinkað sér efni um þekkta aðila sem framið hafa hryðjuverk, aðferða- og hugmyndafræði þeirra.
Hann var sagður hafa ætlað að framkvæma hryðjuverk á Íslandi með skotvopnum og/eða sprengingum dulbúinn sem lögreglumaður.
Ísidór var sagður hafa veitt Sindra liðsinni í orði og verki í broti hans með því að taka þátt í og aðstoða Sindra við framleiðslu skotvopna. Þá átti hann að hafa vitað um áætlanir Sindra um að fremja hryðjuverk og hvatt hann til þess. Ísidór átti að hafa aðstoðað Sindra við öflun lögreglubúnaðar og fatnaðar, miðlað til hans upplýsingum um þekkta hryðjuverkamenn auk upplýsinga um sprengju- og drónagerð.
Aftur neituðu mennirnir tveir sök og aftur var lögð fram frávísunarkrafa í málinu vegna óskýrleika ákærunnar. Í október vísaði Héraðsdómur Reykjavíkur síðan ákærunni aftur frá.
Í október felldi Landsréttur hins vegar úr gildi úrskurð héraðsdóms og skipaði dómstólnum að taka ákæruna til efnismeðferðar.
Aðalmeðferð málsins hófst 8. febrúar og stóð í fjóra daga. mbl.is fjallaði ítarlega um það sem kom fram þar, en Sindri lýsti samskiptum sínum við Ísidór meðal annars sem „fíflaskap“ og að ummæli hans hafi ítrekað verið tekin úr samhengi.
Þá sagðist Sindri „kannski bara vera fróðleiksfús“ um ástæðu þess að hafa sent Ísidór uppskrift að rícin-eitri. Þá sagði hann einnig að orð hans um fjöldamorðingjann Anders Behring Breivik þegar hann sagði „Mein fuhrer“, eða „minn foringi“ vera satíru. Sagði hann að þrátt fyrir að á sama tíma og þeir Ísidór hafi verið að framleiða og selja skotvopn hafi orð þeirra um árás verið grín.
Í skýrslutöku fyrir héraðsdómi sagði Ísidór að húmor hans og Sindra væri „viðbjóðslegur“. Hann sagði tal þeirra hafa verið ósmekklegt og einkennst af kaldhæðni sem skilaði sér illa í textaskilaboðum og að hann sæi eftir þessu. Þá sagði hann enga alvöru hafa verið á bak við skilaboð um að hann ætlaði að drepa stjórnmálamenn. „Það stafaði engin ógn af mér,“ sagði Ísidór fyrir dómi og bætti við: „Mikilmennskubrjálæði í fullum hálfvita“.
Játaði Ísidór jafnframt fyrir dóminum að vera einangrunarsinni og rasisti og hafa sterka skoðun á innflytjendum.
Þá gagnrýndi Ísidór meðferð lögreglu á sér og að hann hafi verið kúgaður í þá þrjá mánuði sem hann var í gæsluvarðhaldi.
Tvímenningarnir viðurkenndu fyrir dómi framleiðslu á skotvopnum, en Sindri gaf þó þær skýringar að hann hefði framleitt þau svo vopnin myndu klikka.
Fréttin hefur verið uppfærð.