Blaðamaður og ljósmyndari mbl.is kíktu í Norðurkjallara Menntaskólans við Hamrahlíð á dögunum. Flestir nemendur klæddust notuðum flíkum en það er ekki bara umhverfisvænt heldur líka ódýrara. Einn nemandi fékk derhúfuna sína frá útigangsmanni og notaði gasblöðru sem skiptimynt.

Gallapilsið fékk Jórunn notað. Hún keypti stígvélin notuð í Wasteland. „Ég stal jakkanum frá mömmu en hann er úr ORG, frá merki sem heitir Humanoid,“ segir Jórunn sem er að safna hári eftir að hún snoðaði það. Bleiki liturinn festist í hárinu.
Sunna keypti smekkbuxurnar notaðar í Wasteland. „Ég stal bolnum úr Níu lífum í Borgarleikhúsinu en ég var í kórnum,“ segir Sunna.
Krummi keypti jakkann í búð sem selur notuð föt í Brussel en hann gengur mikið í notuðum fötum. „Það er líka ódýrara,“ segir hann þegar hann er spurður af hverju hann kaupir notuð föt.
„Þetta er allt notað en ég keypti bolinn á tónleikum hjá Inspector Specetime,“ segir Kolbrún sem finnst klúturinn passa vel við litasamsetninguna á fötunum. Þegar hún hefur tíma reynir hún að vanda fatavalið áður en hún mætir í skólann.
„Ég fann bolinn í þvottahúsinu heima hjá mér. Buxurnar eru úr Weekday,“ segir Elísabet sem er einnig að safna hárið eftir að hafa snoðað á sér hárið. Klippingin sem hún og fleiri eru með eru einkenni fyrir MH en hún segir hártískuna ákveðin eftirköst.
„Húfuna fékk ég þegar ég treidaði „minions“ gasblöðru við róna,“ segir Kristjón. Eftir að hann fékk derhúfuna í skiptum fyrir blöðru kom í ljós að svona derhúfur eru í tísku. Peysan er frá pabba hans en skórnir eru af gerðinni Asadi og eru úr Rúmfatalagernum eða Jysk, eins og verslunin heitir nú. Hann segir ekkert mál að mæta í skólann í inniskóm en hann keyrir í skólann.
Illugi leggur mikið upp úr því að gera góð kaup. „Ég er í 2.000 króna vinnuskóm sem ég keypti í íþróttabúð,“ segir Illugi sem fékk Dickies-vinnubuxurnar á grískum flóamarkaði. Hann var mættur í skólann í veiðiskyrtu en yfir henni var hann í hönnunarpeysu sem hann keypti á 70 prósent afslætti. „Þetta er Heaven by Marc Jacobs,“ segir Illugi um peysuna.
Valgerður keypti leðurjakkann í Verslanahöllinni en hún er dugleg að klæða sig í nokkur lög. Kjóllinn, gallabuxurnar og skórnir eru úr verslun Rauða krossins.
„Háskólaprófessor,“ segir Kristjana þegar hún er spurð út í hvaða þema hún var að vinna með. Hún var í Lacoste-peysu úr Rauða kross búðinni í Mjóddinni. Buxurnar eru frá ömmu hennar.