Nýir strætisvagnar á götuna

Strætó | 13. mars 2024

Nýir strætisvagnar á götuna

„Vagnarnir eru frábær viðbót við flota Strætó og ánægjulegt að sjá þá fara af stað,“ segir Jóhannes S. Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó, um nýja rafvagna sem teknir voru í notkun í dag. Um er að ræða níu nýja strætisvagna sem keyptir voru frá Kína eins og eldri rafvagnar Strætó sem sagðir eru hafa reynst vel.

Nýir strætisvagnar á götuna

Strætó | 13. mars 2024

Einn nýju vagnanna á ferð í dag.
Einn nýju vagnanna á ferð í dag. Ljósmynd/Strætó

„Vagnarnir eru frábær viðbót við flota Strætó og ánægjulegt að sjá þá fara af stað,“ segir Jóhannes S. Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó, um nýja rafvagna sem teknir voru í notkun í dag. Um er að ræða níu nýja strætisvagna sem keyptir voru frá Kína eins og eldri rafvagnar Strætó sem sagðir eru hafa reynst vel.

„Vagnarnir eru frábær viðbót við flota Strætó og ánægjulegt að sjá þá fara af stað,“ segir Jóhannes S. Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó, um nýja rafvagna sem teknir voru í notkun í dag. Um er að ræða níu nýja strætisvagna sem keyptir voru frá Kína eins og eldri rafvagnar Strætó sem sagðir eru hafa reynst vel.

Í tilkynningu frá Strætó kemur fram að vagnarnir séu góð viðbót við flota Strætó og í samræmi við stefnu Strætó um kolefnislausan flota árið 2030. „Með þessum nýju rafvögnum eru nú rúmlega 30% af flota Strætó kolefnislaus sem er gott fyrir umhverfið og stefnir Strætó á að auka enn frekar við umhverfisvæna kosti á næstu árum,“ er haft eftir Jóhannesi. 

Vagnarnir eru hlaðnir í lok ferða eða á milli aksturs.
Vagnarnir eru hlaðnir í lok ferða eða á milli aksturs. Ljósmynd/Strætó

Vagnarnir munu aka leiðir 8, 22, 23 og 31 og fyrir leið 22 í Garðabæ þýðir þetta betra aðgengi þar sem rafvagnarnir eru stærri og notendavænni en þeir sem óku leiðina áður. Settar hafa verið upp hleðslustöðvar bæði upp á Hesthálsi 14 og í Ásgarði í Garðabæ og eru vagnarnir hlaðnir í lok eða á milli aksturs.

mbl.is