Ríkið greiðir þrjá fjórðu af málsvarnarlaunum Sveins Andra Sveinssonar, verjanda Sindra Snæs Birgissonar, og Einars Odds Sigurðssonar, verjanda Ísidórs Natanssonar í hryðjuverkamálinu svokallaða.

Tvímenningarnir voru sýknaðir af ákærum um tilraun til hryðjuverka og hlutdeild í tilraun til hryðjuverka en dæmdir fyrir brot gegn vopnalagagjöf. Var Sindri Snær dæmdur í tveggja ára fangelsi en Ísidór í 18 mánaða fangelsi.
Er þeim báðum gert að greiða fjórðung málsvarnarlauna skipaðs verjanda síns. Eru málsvarnarlaun Sveins Andra Sveinssonar, verjanda Sindra Snæs, og Einars Odds Sigurðssonar, verjanda Ísidórs, 22 milljónir króna hvor um sig.
Einnig er Sindra Snæ gert að greiða fjórðung þóknunar verjanda síns á rannsóknarstigi, Ómari Arnari Bjarnþórssyni, sem nemur 2 milljónum króna.
Ekki leiddi annan kostnað af meðferð málsins samkvæmt dómsuppsögu.