Menningar- og viðskiptaráðuneytið leggur til að fýsileiki þess að stofna svokallaða máltækni- og gervigreindarmiðstöð Íslands verði skoðaður.

Þetta kemur fram í nýrri máltækniáætlun sem ráðuneytið kynnti á fimmtudag. Áætlunin, sem var unnin af stýrihóp ráðuneytisins, telur fram sjö tillögur og kjarnaverkefni og byggir á fyrri máltækniáætlun ráðuneytisins.
Ein tillaga felst í svokallaðri máltækni- og gervigreindarmiðstöð Íslands og er það álit hópsins að æskilegt sé að stjórnvöld stefni að því að koma á fót sambærilegri gervigreindar- og máltæknistofnun á Íslandi og þekkist í öðrum Norðurlöndum og víðar í Evrópu.
Miðstöðinni yrði komið á fót í samstarfi við háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið.
Þá er einnig lagt til að 60 milljónum króna verði varið árlega í hagnýtingarverkefni í máltækni og að áhersla á kynningarstarf og ráðgjöf fyrir máltækni veðri stóraukin.
Í áætluninni er einnig lagt til að 100 milljónum króna sé varið árlega í áframhaldandi þróun kjarnaverkefna í máltækni. Þá verði einnig nýtt viðhaldsfyrirkomulag fyrir máltækniinnviði sett á laggirnar.
Þá verði einnig úttekt gerð á CLARIN-samstarfinu, rannsóknarinnviðaverkefni Evrópusambandsins.