Í gær fór fyrri keppnisdagur í undankeppni Bocuse d´Or þar sem Sindri Guðbrandur Sigurðsson keppti fyrir hönd Íslands og stóð sig framúrskarandi vel ásamt teymi sínu, en keppnin er haldin í Þrándheimi í Noregi.

Aðstoðarmaður Sindra í búrinu er Hinrik Örn Halldórsson og þjálfari teymisins er Sigurjón Bragi Geirsson. Sindra gekk mjög vel í keppninni og skilaði á réttum tíma. Samtals eru það 20 lið sem keppa um að komast í aðalkeppnina sem haldin verður í Lyon í Frakklandi þann 26. janúar árið 2025. Seinni keppnisdagurinn er í gangi þessa stundina, miðvikudaginn 20. mars. Einungis 10 lönd komast áfram í úrslitakeppnina í Lyon á næsta ári svo spennan er mikil. Úrslitin verða kunngerð í kvöld.
Hér fyrir neðan má sjá myndaveislu af réttunum hans Sindra sem hann framreiddi í gær.