Heimir Fannar Hallgrímsson, stjörnufasteignasali og Everest-fari, er genginn út. Sú heppna heitir Dagmar Silja K. Svavarsdóttir viðskiptafræðingur.

Heimir og Dagmar eru með sömu áhugamál en þau birtu nýverið myndir af sér saman í skíðaferð. Það er hins vegar ekki bara fjöllin sem heilla þau bæði heldur líka fasteignamarkaðurinn. Dagmar Silja skrifaði ritgerðina Vegferðin að fyrstu fasteignakaupum undir handleiðslu Más Wolgang Mixa þegar hún lauk grunnnámi í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík.
Heimir er ekki bara einn þekktast fasteignasali landsins heldur vakti hann líka mikla athygli þegar hann gekk á topp Everest með félaga sínum, Sigurði Bjarna Sveinssyni, fyrir þremur árum. Fóru félagarnir í ferðina til styrktar Umhyggju.
Smartland óskar parinu til hamingju með ástina!