„Það var hjarta í varnarleiknum en þetta var ekki fullkomið,“ sagði Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Íslands- og bikarmeistara Víkings úr Reykjavík í knattspyrnu, í Fyrsta sætinu.

Arnar, sem er þjálfari Íslands- og bikarmeistara Víkings, gerði meðal annars upp landsleik Íslands og Ísraels í undanúrslitum umspilsins um sæti í lokakeppni EM 2024 þar sem Ísland fagnaði stórsigri, 4:1, í Búdapest á fimmtudaginn, ásamt því að spá í spilin fyrir komandi úrslitaleik gegn Úkraínu í Wroclaw í Póllandi á þriðjudaginn.
Þrátt fyrir að íslenska liðið hafi unnið stórsigur, 4:1, var liðið oft á tíðum heppið í leiknum og Ísraelsmenn brenndu meðal annars af vítaspyrnu í síðari hálfleik í stöðunni 2:1.
„Það þarf að slípa þetta betur til,“ sagði Arnar.
„Ég sem þjálfari trúi því ekki að þú getir verið heppinn tvisvar sinnum í röð. Það voru ákveðin atriði í Ísraelsleiknum sem við sluppum með og við munum ekki sleppa með það á móti sterku liði Úkraínu.
Þetta var tilfinningaþrunginn sigur og þá fara menn oft í það að halda að allt hafi verið frábært og æðislegt. Menn gætu freistast til þess að spila nákvæmlega eins á þriðjudaginn en ef við gerum það þá fer þetta illa gegn Úkraínu, treystið mér. Það voru nokkur atriði sem bögguðu mig sem við komumst upp með,“ sagði Arnar meðal annars.